Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Leir á loftinu - samsýning Leirlistafélags Íslands

Samsýning meðlima Leirlistafélags Íslands á Hlöðuloftinu opnar á laugardaginn 12. nóvember kl. 16 á Korpúlfsstöðum en sýningin stendur til 27. nóvember. Sýnendur eru starfandi leirlistafólk, allt frá stofnfélögum til nýjustu meðlima félagsins. Verkin eru frá mismunandi tímum í ferli listafólksins og sýna fjölbreytileikann í sköpunarferlinu með leirinn.

Öll velkomin á opnun á laugardaginn þar sem verða léttar veitingar í boði.

Sýningin stendur opin laugardaga og sunnudaga 13:00 - 18:00, fimmtudaga og föstudaga 17:00 - 20:00 og er síðasti sýningardagur sunnudagurinn 27. nóvember.

Leirlistafélag Íslands (LÍ) var stofnað 1981 og er því 41 árs í ár, 2022.

Leir og önnur efni sem notuð eru í leirlist eru flest náttúruleg efni sem grafin eru upp úr jörðu. Möguleikar þeirra sem efniviður til sköpunar er nær óendanlegur og það er hlutverk listafólksins að finna sína leið með efnið. Það getur verið langt og strembið ferli því leir virðist hafa sjálfstæðan vilja og er ekki alltaf til í að fyrirgefa meðferðina á sér. Þá þarf að finna aðrar leiðir sem leirinn sættir sig við. Þetta eru samningaviðræður og geta tekið langan tíma og margar tilraunir áður en markmiðinu er náð.

Sýningin “Leir á Loftinu” er yfirlitssýning félaga í Leirlistafélagi Íslands og þar má glöggt sjá hve ólíkar leiðir er hægt að fara í sköpun með leir. Það er hægt að vinna með hann mjúkan, sveigjanlegan, harðan, grófan, fíngerðan og fljótandi. Verk úr leir geta verið málverk, skúlptúr, nytjalist eða eitthvað allt annað.

Sum verkin eru svo glæný að þau eru sett upp volg úr ofnunum á degi opnunarinnar. Önnur eru eldri, frá ákveðnu tímabili í ferli listafólksins eða frá mismunandi tímum og sýna ferðalag listsköpunarinnar. Verkin á sýningunni eru því mjög fjölbreytt og gefa örlitla innsýn í þær óendanlegu áttir sem listafólk getur farið í listsköpun sinni með leirinn sem efnivið.
Sýnendur eru:

  • Þórdís Sigfúsdóttir
  • Þórdís Baldursdóttir
  • Unnur S. Gröndal
  • Ólöf Sæmundsdóttir
  • Kristbjörg Guðmundsdóttir
  • Katrín Valgerður Karlsdóttir
  • Hólmfríður Vídalín Arngrímsdóttir
  • Hrönn Waltersdóttir
  • Halldóra Hafsteinsdóttir
  • Hafdís Brands
  • Guðný Margrét Magnúsdóttir
  • Glytta
  • Daði Harðarson
  • Auður Inga Ingvarsdottir
  • Auður Gunnur Gunnarsdóttir
  • Arnfríður Lára Guðnadóttir
  • Arnbjörg Drífa Káradóttir
  • Ása Tryggvadóttir
  • Aldís Yngvadóttir

Tengt efni

  • Málþing um listaverk í opinberu rými - ábyrgð og viðhald

  • JARÐSETNING – kvikmynd og bók um upphaf og endalok í manngerðu umhverfi

  • Fögnum framúrskarandi hönnun þann 17. nóvember í Grósku

Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Leirlist
  • Leirlistafélagið

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200