Hvernig getur AÍ haft áhrif á rannsóknir í byggingarlist?
Í nýrri stefnu og aðgerðaráætlun stjórnar AÍ er kveðið á um stofnun starfshóps um hvernig megi efla rannsóknir í arkitektúr á Íslandi.
Hugmyndin með starfshópnum er að fá yfirsýn yfir umfang rannsókna í arkitektúr á Íslandi og hvernig aðgengi er að fjármögnun á rannsóknarverkefnum. Ennfremur verði það verkefni hópsins að kortleggja hvar safnkostur fyrrum Byggingarlistasafns Reykjavíkur er niðurkominn og hvernig við sjáum fyrirkomulag byggingarlistasafns í framtíðinni með tilliti til fræðslu til almennings og tækifæra til rannsókna.
Allir þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í starfshópnum eru hvattir til að senda tölvupóst á netfangið ai@ai.is. Vinna í starfshópnum er ólaunað starf.