Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Starfsnám í íslenska skálanum á Feneyjatvíæringnum

23. október 2024

Óskað er eftir starfsnemum til að hafa eftirlit með og miðla sýningunni Lavaforming sem er framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr 2025. Feneyjatvíæringurinn í arkitektúr er einn mikilvægasti viðburður á sviði arkitektúrs á heimsvísu.

Á tvíæringnum koma saman aðilar sem vinna á vettvangi arkitektúrs og þróun manngerðs umhverfis, t.a.m. fulltrúar ríkja, sveitarfélaga, arkitektar og hönnuðir, sérfræðingar á sviði byggingartækni, framleiðendur byggingarefna, fjárfestar og þróunaraðilar bygginga svo einhverjir séu nefndir. Árið 2023 voru 63 þjóðir sem tóku þátt í tvíæringnum og voru sýningagestir yfir 285.000 talsins og komu þeir allstaðar að úr heiminum. 

Alls er verið að leita eftir sjö starfsnemum.

Tímabil sem um ræðir er:

-1. maí til 30. júní (2 mánuðir)
-1. maí til 31. júlí (3 mánuðir)
-1. maí til 15. september (4 1/2 mánuður)
-30. júní til 31. ágúst (2 mánuðir)
-31. júlí til 30. nóvember (4 mánuðir)
-31. ágúst til 30. nóvember (3 mánuðir)
-15. september til 30. nóvember (2 1/2 mánuður)

Hverjir geta sótt um?
-Háskólanemar á öllum stigum háskólanáms. Ef farið er í starfsnám eftir útskrift þarf starfsnámi að vera lokið ekki seinna en ári eftir útskrift. Umsókn um starfsnám þarf að skila inn á meðan umsóknaraðili er enn skráður í háskólanám (um nema í HÍ gildir amk 2 mánuðum fyrir útskrift).

Helstu verkefni og ábyrgð:
-Eftirlit með íslenska skálanum á meðan dvöl stendur
-Móttaka gesta og miðlun sýningar og upplýsingum um arkitektúr á Íslandi
-Skrifa pistla um sýningar tvíæringsins
-Miðlun efnis til MH&A
*Starfsnemar fá góða og ítarlega kynningu á íslenska skálanum frá teyminu sem stendur á bak við Lavaforming áður en farið er út í starfsnámið. 

Hvað sem skal þróa í starfsnáminu:
-Miðla arkitektúr í ræðu og riti
-Færni í samskiptum
-Auka þekkingu á alþjóðlegum arkitektúr

Kostur starfsnámsins:
-Styrkir tengslanet
-Veitir alþjóðlega reynslu
-Byggir upp ferilskrá

Hæfniskröfur:
-Sjálfstæði, metnaður og drifkraftur.
-Hæfni og áhugi á að til að tjá sig í ræðu og riti um arkitektúr.
-Mjög góð enskukunnátta. Þekking á þriðja tungumáli er kostur. 

Ábyrgð starfsnema:
-Útvega sér íbúðarhúsnæði
-Koma sér til og frá Feneyjum

LHÍ og HÍ veita styrki til dvalarinnar. Ekki er hægt að tryggja að allir starfsnemar hljóti Erasmus + og flugstyrk en reynt verður eftir fremsta magni að þeir hljóti styrk.

Erasmus +: 606 Evrur mánaðarlega
Flugstyrkur: 305 Evrur
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs: 15 Evrur daglega, aðgöngumiði á tvíæringinn yfir tímabilið.

Starfsnemar vinna að jafnaði 30 tíma á viku

Íslenski skálinn á Feneyjatvíæringnum:
-Sumaropnun: 11:00-19:30
-Haustopnun: 10:00-18:30 (frá 1. október-23. nóvember)
Lokað á mánudögum

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi í starfsnámið. Eins þarf að fylgja upplýsingar um hvaða tímabil er óskað eftir. Tímabilin mega vera fleiri en eitt sem óskað er eftir.

Starfsnemar á vegum MH&A eru bæði slysa og tjónatryggðir á meðan dvöl stendur.

Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um!

Kynningarfundur á starfsnáminu fer fram miðvikudaginn 13. nóvember kl. 12:10-13:00 í Bratta, Stakkahlíð 1, LHÍ.

Frekari upplýsingar veitir Gerður Jónsdóttir, verkefnastjóri Feneyjatvíæringsins í arkitektúr, gerdur@honnunarmidstod.is
Umsóknarfrestur rennur út 1. desember 2024.
Umsóknir skal senda á netfangið gerdur@honnunarmidstod.is

Lavaforming

Frekari upplýsingar

Smelltu hér

Kynningarfundur-Starfsnám á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr

13. nóvember 2024

Smelltu hér

Tengt efni

  • Arnhildur Pálmadóttir hlýtur Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs

  • Stafrænn gagnagrunnur fyrir byggingariðnað og útisýning innblásin af skáldskap hljóta hæstu styrki Hönnunarsjóðs

  • Smiðja er tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands 2024

Dagsetning
23. október 2024
Höfundur
Gerður Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Arkitektúr

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200