Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Hver hlýtur Steinsteypuverðlaunin 2024? Ábendingar óskast

23. nóvember 2023
Vök Baths, Basalt arkitektar, vinningshafar Steinsteypuverðlaunanna 2023

Steinsteypufélag Íslands óskar eftir ábendingum til Steinsteypuverðlaunanna 2024. Óskað er eftir því að ábendingar berist félaginu fyrir 28. desember 2023 en Steinsteypuverðlaunin verða veitt á Steinsteypudaginn, þann 2. febrúar 2024. Veitt verður viðurkenning fyrir mannvirki á Íslandi þar sem saman fer áhugaverð og vönduð notkun á steinsteypu í manngerðu umhverfi.

Steinsteypufélag Íslands leitast stöðugt við að vekja athygli á mikilvægi steinsteypu í umhverfi okkar, enda er steinsteypa eitt helsta byggingarefni Íslendinga. Stjórn Steinsteypufélags Íslands hefur ákveðið að velja steinsteypt mannvirki ársins árið 2024.

Við valið verður haft að leiðarljósi að mannvirkið:

  • Sýni steinsteypu á áberandi hátt.
  • Sé framúrskarandi vegna arkitektúrs, verkfræðilegra lausna, gæði steinsteypu og handverks.
  • Búi yfir frumleika og endurspegli þekkingu í meðferð og notkun steinsteypu. Gæði og áferð steinsteypu vega þungt í mati.
  • Auðgi umhverfið, inniberi gæði, glæsileik og nytsemi og sýni augljósan metnað í samhengi við umhverfi sitt.
  • Sé byggt á síðustu fimm árum og í notkun.

Viðurkenningin verður veitt mannvirkinu og þeim aðilum sem að því standa, svo sem verkkaupa, hönnuðum og framkvæmdaaðilum.

Leitað er eftir ábendingum frá verk-, tækni- og byggingafræðingum, arkitektum, listamönnum og iðnaðarmönnum og frá skipulags- og bygginganefndum. Óskað er eftir því að ábendingar berist félaginu fyrir 28. desember 2023.

Þeim fylgi eftirtalin gögn:

  • heiti mannvirkis, staðsetning og eigandi
  • verkkaupi
  • hönnunarteymi
  • framkvæmdaaðili- og framkvæmdaár
  • hvenær tekið í notkun
  • stutt lýsing á mannvirki, kennistærðir og hlutverk steinsteypu
  • ljósmyndir og, ef vill, myndbönd (teikningar óþarfar)

Tillögur og fyrirspurnir skulu sendast á netfang félagsins: steinsteypufelag@steinsteypufelag.is

Stjórn Steinsteypufélags Íslands áskilur sér rétt til að meta mannvirki á innsendum gögnum sem og að óska eftir frekari upplýsingum um verkið. Stjórn Steinsteypufélags Íslands

Tengt efni

  • Endurskoðun siðareglna Arkitektafélag Íslands - Vilt þú taka þátt?

  • Verslanir sem selja íslenska hönnun
  • Björn Blumenstein hannar jólakött Rammagerðarinnar 2023

Dagsetning
23. nóvember 2023
Höfundur
Gerður Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Arkitektúr
  • Verðlaun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200