Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Textílfélagið býður upp á námskeið í sumar

22. júní 2021

Textílfélagið býður upp á á þriggja daga endurmenntunarnámskeið fyrir listgreinakennara og aðra áhugasama í sumar. Kennd verður undirstaða jurtalitunar (bæði fyrir efni og garn), ýmsar útsaumsaðferðir, skissuvinna og bókagerð.

Fyrsta námskeiðið verður 5.-7.júlí og seinna námskeiðið verður 10.-12.ágúst. Hægt er að skrá sig á heimasíðu félagsins hér.

Jurtalitun + bókagerð

Kennarar: Þorgerður Hlöðversdóttir og Arnþrúður Ösp Karlsdóttir
5.-7.júlí 2021
Fyrir hádegi læra nemendur um grunnatriði í jurtalitun. Íslenskar jurtir verða notaðar til að lita ullargarn og munu nemendur einnig læra að nota hjálparefni sem gefa mismunandi tóna.
Í lok námskeiðsins fá nemendur prufur af öllu því sem þeir hafa litað á námskeiðinu.

Eftir hádegi verður kennsla í bókagerð þar sem nemendur læra að brjóta og sauma nokkrar mismunandi gerðir bóka. Hugmyndavinna og skissugerð verður unnin með jurtalit og bleki, handgerðum penslum og einföldum áhöldum á pappír, sem verður notaður í bækurnar. 

Indigolitun + útsaumur
Kennarar: Þorgerður Hlöðversdóttir og Arnþrúður Ösp Karlsdóttir
10.-12. ágúst 2021
Fyrir hádegi læra nemendur að útbúa indigo lög og lita bæði garn og efnisbúta. Nemendur prófa sig áfram með sibori tækni og gera tilraunir. Einnig verður litað með kaktuslús og hún yfir lituð með indigo.
Eftir hádegi verða kenndar útsaumsaðferðir, einföld spor sem nýta má á fjölbreyttan hátt s.s. boro, sashiko og frjálsan útsaum. Unnin verður hugmyndavinna á pappír sem er yfirfærð á efni.

ÞORGERÐUR HLÖÐVERSDÓTTIR textíllistakona og kennari er sérfræðingur í jurtalitun. Hún hefur
starfað við kennslu og haldið fjölda námskeiða í jurtalitun og tekið þátt í sýningum á Íslandi og í Kanada.
Hægt verður að kaupa bók hennar Foldarskart í ull og fat á Korpúlfsstöðum.

ARNÞRÚÐUR ÖSP KARLSDÓTTIR vinnur textíl og bókverk með fjölbreyttum efnum og aðferðum.
Hún hefur starfað við kennslu í textíl og myndlist samhliða listsköpun sinni og tekið þátt í sýningum á Íslandi, Skandinavíu og Bandaríkjunum.

Verð fyrir þriggja daga námskeið er 48.500
(43.500 kr fyrir meðlimi Textílfélagsins)

Skráning

Skráning fer fram á heimasíðu félagsins. Hámarksfjöldi nemenda er 12. Lágmarksfjöldi er 8.

Ýttu hér

Tengt efni

  • Sýnir á Feneyjatvíæringnum á Ítalíu

  • Taktu þátt í að móta framtíð hönnunar og arkitektúrs á Íslandi

  • Umhverfisstofnun óskar eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar 2021

Dagsetning
22. júní 2021
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Textílhönnun
  • Textílfélagið

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200