Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

„Það mikilvægasta við vinskap er að byggja upp traust“

24. nóvember 2022

Sýningin Hæ/Hi: Designing Friendship opnaði í Seattle í byrjun október þar sem sex íslenskir hönnuðir/hönnunarteymi fóru vestur um haf til að fylgja sýningunni eftir og styrkja vináttuböndin við bandarísku hönnunarteymin. 

Hæ/HI átti upphaflega að vera á dagskrá HönnunarMars árið 2020 en nú loks tveimur árum síðar hefur vináttan fengið að blómstra þegar hönnuðirnir frá Seattle sóttu íslensku hönnuðina heim á HönnunarMars í vor og svo núna þegar íslensku hönnuðirnir fóru til Seattle. Sýningin var sett upp í Maria Bianco Gallery í tengslum við Taste of Iceland í Seattle í byrjun október. 

Úrval hönnuða og hönnunarteyma frá vinaborgunum Seattle og Reykjavík sýndu verk sem unnin voru út frá vináttu. Áhersla er á upphafsstefið; hvernig við kynnum okkur. Endurspeglum við eigin persónuleika og menningu við fyrstu kynni? Hvernig notum við skynfærin til þess að kynnast og tengjast? Hverju deilum við og hvað viljum við vita?

Hugmyndin að sýningunni varð til á Taste of Iceland viðburði í Seattle á vegum Iceland Naturally og Íslandsstofu, árið 2018, þegar Darin Montgomery, stofnandi Urbancase og Fin, og Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, heimsóttu hönnunarstúdíó í borginni.

Þátttakendur í Hæ/Hi

  • Agustav (IS)
  • Amanda Ringstad (US)
  • Fruitsuper (US)
  • Gabriel Stromberg (US)
  • Grain (US)
  • Hanna Dís Whitehead (IS)
  • Hugdetta & 1+1+1 (IS)
  • John Hogan (US)
  • Jonathan Junker (US)
  • Ragna Ragnarsdóttir (IS)
  • Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir (IS)
  • Theodóra Alfreðsdóttir (IS)
  • Weekend Studio (US)
  • Þórunn Árnadóttir (IS)

„Vinskapur snýst um samskipti, samvinnu, ást og tillitssemi gagnvart náunganum,“ segir Darin Montgomery í myndbandinu hér neðar í fréttinni sem gefur innsýn inn í verkefnið og ferðina til Seattle.  

–

Myndband: Addi Alondres

Tengt efni

  • Hæ/Hi opnar í Seattle

  • Rammagerðin fagnar íslenskri hönnun

  • Helga Ólafsdóttir er nýr stjórnandi HönnunarMars

Dagsetning
24. nóvember 2022
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir
Ljósmyndari
Anna Karlsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Vöruhönnun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200