Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Þrjár opnanir í Hönnunarsafni Íslands 6. október

4. október 2023
Bar á Hótel Sögu eftir Lothar Grund

Þrjár opnanir eru í Hönnunarsafni Íslands þann 6. október næstkomandi kl. 17. Dolinda Tanner, Keramik og veflistverk á Pallinum, Skráning á teikningum eftir Lothar Grund í Safninu á röngunni og sýningin Hönnunarsafn sem heimili opnar í heild sinni.

Dolinda Tanner, Keramik og veflistaverk - Sýning á Pallinum

Það var ævintýraþráin sem dró Dolindu Tanner (1923 – 1967) fyrst til Íslands. Vinaböndin, náttúran, ástin og listin urðu til þess að hún ílentist hér.

Dolinda var fædd og uppalin Sviss. Hún nam myndlist í listaháskólunum í Genf og Basel. Eftir námið þráði hún að sjá sig um og ferðast og dvaldi í Bretlandi og Svíþjóð áður en hún kom til  Íslands árið 1948. Þar kynnist Dolinda hjónunum Gesti Þorgrímsssyni og Sigrúnu Guðjónsdóttur (Rúnu) sem fengu Dolindu og Waistel Cooper, skoskan listamann, í lið með sér við að byggja upp Laugarnesleir.  Ekkert þeirra hafði grunn í keramiki en þau létu það ekki á sig fá. 

Dolinda hafði góða innsýn í miðevrópskar hefðir og vann undir áhrifum módernismans. Pablo Picasso er greinilegur áhrifavaldur og þaðan koma mögulega líka afrísku áhrifin sem skynja má í mörgum verkum Dolindu. Í verkum hennar koma saman fögur litapalletta, geometrísk og fíguratíf form og hlutir sem geisla af sköpunargleði.

Sýningarstjóri: Sigriður Sigurjónsdóttir

Skráning á teikningum eftir Lothar Grund - Safnið á röngunni

 Lothar Grund (1923 – 1995) var þýskur leiktjaldamálari sem flutti til Íslands árið 1950 og bjó hér til ársins 1963. Á Íslandi vann hann meðal annars sem leiktjaldamálari, innanhússarkitekt og við að teikna auglýsingar. Frá 1961 til 1963 vann Lothar sem innanhússarkitekt fyrir Hótel Sögu og hannaði innréttingar fyrir herbergi og sali hótelsins.  

Árið 2022 fékk Hönnunarsafn Íslands að gjöf frá fjölskyldu Lothars teikningar og gögn frá tímabilinu þegar hann vann fyrir Hótel Sögu. Eru þetta meðal annars frumteikningar af herbergjum, tillögur að sölum og auglýsingar fyrir Hótelið. Einnig fylgdu gjöfinni auglýsingateikningar fyrir hin ýmsu fyrirtæki.

Umsjón með skráningunni hefur Bóel Hörn Ingadóttir

Hönnunarsafnið sem heimili

Sýningin opnar nú í heild sinni eftir viðgerðir á þaki. Um 200 munir úr safneigninni eru settir fram sem grunnmynd af heimili.

Sýningarstjórar: Anna Dröfn Ágústsdóttir, Arnar Freyr Guðmundsson, Birna Geirfinnsdóttir og Sigriður Sigurjónsdóttir

 

Viðburður á Facebook

Tengt efni

  • Fyrirlestur Tatiönu Bilbao - 'The new landscape: The social'

  • Sýningin Samband opnar í Epal

  • Hæ/Hi Saman/ Together opnar í Seattle

Dagsetning
4. október 2023
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Fagfélög

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200