Útskriftarsýning Upplýsingatækniskólans

Öllu verður tjaldað til þegar útskriftarsýning nemenda Upplýsingatækniskólans í bókbandi, grafískri miðlun og ljósmyndun opnar í Tækniskólanum (gamla Sjómannaskólanum) við Háteigsveg 35–39 föstudaginn 12. maí klukkan 15:00–18:00.
„Þetta verður mjög spennandi og gaman að sjá lokaafraksturinn hjá nemendum. Þetta er svo fjölbreytt og skemmtileg verkefni,“ segir Linda Katrín Elvarsdóttir, nemandi í grafískri miðlun.
Samnemandi Lindu í grafískri miðlun, Andri Már Bryde tekur undir þau orð. „Já þarna verður heilmikið að sjá, allt frá ljósmyndum upp í prentgripi.“
Á sýningunni gefur að líta fjölbreytt verk eftir 19 nemendur, allt frá ljósmyndum upp í innbundnar bækur og prentgripi, þar á meðal ljósmyndabækur, auglýsingar, umbúðir, bæklinga og tímaritið Ask, sem er samstarfsverkefni nema í grafískri miðlun.
Sýning á verkefnum nemenda Upplýsingatækniskólans á sér langa sögu en hún er lokapunkturinn á tveggja og hálfs árs lærdómsferli þeirra og þykir gefa ágætis innsýn í hið yfirgripsmikla nám sem fram fer í skólanum. Nemendur eru öll sammála um að þetta sé búið að vera mjög lærdómsríkt ferli.
„Við erum búin að læra ótrúlega mikið á þessum tíma,“ segir Grímkell Orri Sigurþórsson, nemi í grafískri miðlun. „Það er sko alveg óhætt að segja að maður sé kominn með virkilega gott veganesti út á atvinnumarkaðinn.“
Sýningin verður opnuð á 3. hæð á Háteigsvegi föstudaginn 12. maí, eins og áður sagði, og stendur til 15. maí.
Olivier Piotr Lis segir að enginn verði svikinn af því að mæta.
„Það er um að gera að kíkja við, það verður vel þess virði,“ segir Olivier, en hann stóð uppi sem Íslandsmeistari í grafískri miðlun, á Minni Framtíð, Íslandsmeistaramótinu í iðn- og verkgreinum, sem fór fram í mars.
Enginn aðgangseyrir er á sýninguna og er hún öllum aðgengileg.
Hér má sjá brot af útskriftarverkum.




