Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
  • Fréttir

    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
  • Verkefni

    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
  • Íslensk hönnun og arkitektúr

    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
  • Fyrir hönnuði

    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
  • Fagfélög

    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Valdís Steinarsdóttir tilnefnd til Formex Nova verðlaunanna

Vöruhönnuðurinn Valdís Steinarsdóttir hefur hlotið tlnefningu til sænsku hönnunarverðlaunanna Formex Nova 2020.  

Valdís útskrifaðist frá vöruhönnunardeild Listaháskóla Íslands árið 2017 og er sjálfstætt starfandi hönnuður með aðalfókus á tilraunakennt efnisval með áherslu á enduvinnslu lífrænna efna.
"Það er mér ómetanleg hvatning að vera tilnefnd. Með vinnu minni hef ég haft að leiðarljósi að vekja fólk til umhugsunar um aðkallandi vandamál sem snerta okkur öll og hvetja til samtals um nýjar lausnir. Keppni á borð við Formex Nova gefur mér færi á að ná til mun fleiri en nokkru sinni fyrr og ég er gríðarlega þakklát fyrir það tækifæri,“ segir Valdís. Í vinnu sinni leitast hún eftir samtali við áhorfendur við að finna einstakar lausnir við samfélagslegum og umhverfislegum vandamálum. 

Hönnun sem einblínir á tilraunakennd efni og að finna einstakar lausnir að samfélagslegum og umhverfislegum vandamálum. Gegnum verkefni sín leitar Valdís að opnu samtali við áhorfendur um samfélagslegar breytingar í gegnum hönnun.

Umsögn dómnefndar

Valdís hefur verið tilnefnd til nýsköpunarverðlauna forseta Íslands, hlaut fyrstu verðlaun á Paris Design Forum og talaði á Design Diplomacy á Helsinki Design Week síðastliðið haust. Verkefni hennar Bioplastic Skin vakti athygli á HönnunarMars 2019 en þar var búið til sérstakt umbúðaplast fyrir kjötvörur úr dýrahúðum. Formex Nova verðlaunin voru fyrst afhent  fyrir fimm árum síðan í tengslum við Formex hönnunarsýninguna í Stokkhólmi og hefur það að markmiði að kynna og efla norræna hönnun. Verðlaunin beina sjónum sínum að ungum hönnuðum sem vinna á Norðurlöndunum. Meðal þeirra sem hafa hlotið tilnefningu eru Ragna Ragnarsdóttir, sem einnig vann verðlaunin árið 2018 og í fyrra var vöruhönnuðurinn Theodóra Alfreðsdóttir tilnefnd. Verðlaunaafhendingin sjálf fer fram í haust í Stokkhólmi. 

Tengt efni

  • Það er allt hægt

  • Stikla - Kimi

  • Farfuglar — Ragna Ragnarsdóttir iðnhönnuður

Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Fréttir
  • Greinar
  • Vöruhönnun
  • Verðlaun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200

Þessi vefur notar vafrakökur (e. cookies) til að tryggja sem besta upplifun af notkun vefsins. Lesa meira um vafrakökur.