Regína Márusdóttir
Regína lærði leirlist á Bornholm í Danmörku, í Konunglegu Dönsku Listaakademíunni og í starfsnámi hjá Hjorths Keramikfabrik. Verk hennar eru ýmist unnin á leirrennibekk, handmótuð eða gerð í handgerðum gifsmótum, en einnig hefur hún einbeitt sér að gerð tilraunakenndra glerunga.
Regína er með M.Ed gráðu í kennslu list- og verkgreina, með áherslu á sjónlistir, og hefur sérhæft sig í leirlistarkennslu.