Ingibjörg Ósk Þorvaldsdóttir
Ingibjörg Ósk útskrifaðist úr Kennaraháskólanum árið 1981 og starfaði lengst af sem umsjónar- og smíðakennari. Árið 2012 lét hún drauminn rætast og lauk diplómanámi í keramik frá Myndlistarskólanum í Reykjavík. Ingibjörg starfar nú sem keramikhönnuður og framleiðir mikið úrval af handunnum nytjahlutum úr steinleir og postulíni.