Auður Katrín Víðisdóttir
Auður Katrín er innanhússarkitekt FHI og stofnandi Studio Auðar, innanhússarkitektastofu sem sérhæfir sig í hönnun fyrir fyrirtæki og upplifunardrifin rými. Í verkum sínum leitast hún við að skapa einstakar upplifanir í gegnum innanhússarkitektúr og nýtir til þess aðferðir úr þjónustu- og upplifunarhönnun.