Þórir Karl Bragason Celin
Hef unnið við ýmislegt skapandi síðustu 20+ ár. Grafísk hönnun, vefhönnun, leikjahönnun, myndskreytingar.
Lítið verið í textasmíðum, enda er þessi texti frekar lítill og léttur.
Ég geri ýmislegt fyrir Le Kock, það er fátt eins skemmtilegt einsog að teikna fyrir þá, ég fær að gera einsog ég vil, á þann hátt sem ég vil. ÞAÐ ER BEST.... skál!
Barnabækur detta reglulega inn, þessi sería er teiknuð fyrir góðan vin, sem skrifaði þær fyrir son sinn. Alltaf skemmtilegt að gera afþví það er gaman að gera.
Það er líka gaman að teikna digital... endalausir möguleikar þar líka.
Sérstaklega teiknað fyrir einn svalasta hönnuð íslands... : metall.co
Ef verkefnin væru meira "geturðu teiknað mynd með penna"? Þá myndi ég skemmta mér meira.
Létt klikkað verkefni, teiknaði þessa inn á Matarkjallaranum, fríhendis með pennum beint á messing plötu. Pennarnir þornuðu strax þannig að öll mistök varð að nýta. Ef ég man rétt þá er hún 6 metrar á breidd, 1.20 á hæð.
Að fá hamborga afhentan á hjólaskautum er eitthvað svalt dæmi.... (ætti ég að henda inn einhverju hönnunardæmi? Eða er bara pönk að ekki gera það?)
Uppáhalds aðferð mín við að slaka á er að teikna eitthvað... þannig varð þessi til.
Nokkrar bjórdósir sem ég hef sett upp, myndskreytt eða annað format.
Myndskreyting f. Borg Brugghús : HEYKANÍNA / Hönnun og uppsetning gerð af ENNEMM