Vilt þú taka þátt í nefndarstörfum fyrir Arkitektafélag Íslands?
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/93ffbcff-aad0-4d82-a9f4-84fcf805d43f_Nefndir+A%C3%8D+%C3%A1+fundi+5.+j%C3%BAn%C3%AD+2023..jpg?auto=compress,format&rect=0,100,651,668&w=1620&h=1662)
Aðalfundur Arkitektafélags Íslands verður haldinn miðvikudaginn 21. febrúar nk. Á aðalfundi er m.a. kosið um setu í nefndum fyrir félagið. Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á að sinna trúnaðarstörfum fyrir félagið um að hafa samband með því að senda tölvupóst á netfangið ai@ai.is.
Nefndir félagsins eru eftirfarandi:
- Dagskrárnefnd
- Laganefnd
- Menntanefnd (nefndarmenn bjóða sig allir fram að nýju)
- Orða-og ritnefnd
- Samkeppnisnefnd
- Siðanefnd
- Framþróunarnefnd (nefndarmenn bjóða sig allir fram að nýju)
Auk nefndarstarfa er kosið í eftirfarandi embætti:
- Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara
- Kosning fulltrúa í stjórn Minningarsjóðs Guðjóns Samúelssonar
- Kosning annarra fulltrúa í samtök og ráð sem félagið er aðili að
Á síðasta aðalfundi var kosin ný stjórn og býður hún sig fram að nýju fyrir næsta aðalfund. Í stjórn Arkitektafélags Íslands sitja:
- Sigríður Maack, formaður
- Helga Guðrún Vilmundardóttir, gjaldkeri
- Jóhanna Höeg, ritari