Á döfinni
HÖNNUNARMARS 2020
Eins og flestum er nú kunnugt um þá var ákveðið að fresta HönnunarMars fram á sumar en hún mun fara fram dagana 24.-28. júní næstkomandi. HönnunarMars hefði átt að hefjast í dag og kastljósið beinast að íslenskri hönnun og arkitektúr í sinni fjölbreyttu mynd. Það er áskorun fyrir hátíðina og þátttakendur að færa 100 sýningar og 250 viðburði fram um 14 vikur en í því felast líka tækifæri til að gefa fólki innsýn í vinnu, verkefni og hugarheim hönnuða á þessum dæmafáu tímum. Af því tilefni freistum við þess að virkja samtakamátt allra hönnuða og arkitekta til þess að vekja athygli á íslenskri hönnun á samfélagsmiðlum. Átakið fer fram í kringum áætlaðar dagsetningar hátíðarinnar undir myllumerkjunum #minnhönnunarmars / #mydesignmarch.
Þó að HönnunarMars hafi nú verið frestað fram á sumar getum við í sameiningu vakið athygli á íslensku hugviti, hönnun og arkitektúr, mikilvægi hátíðarinnar og þeim framúrskarandi verkefnum og sýningum sem fólk getur byrjað að hlakka til að sjá í sumar!
Markmiðið er að byrja sem fyrst að setja inn allskonar hönnunartengt efni á miðla eins og Instagram, Instagram Story og Facebook, og við minnum ykkur á að nota myllumerkin #minnhönnunarmars og/eða #mydesignmarch og merkja póstana @designmarch @honnunarmidstod og @hadesignmag svo við getum dreift þeim áfram á okkar miðlum.
Fyrir áhugasama eru hér rammar með skilaboðunum „HönnunarMars – sjáumst í júní“. Þá má til dæmis setja yfir myndir og annað efni til þess að auðkenna það hátíðinni og nýrri tímasetningu hennar – þegar og ef það hentar.
Við vonum að þið takið vel í þetta í og við getum hitað í sameiningu upp fyrir hátíðina í sumar!