ARKÍS arkitektar leita að arkitektum og byggingarfræðingum vegna aukinna verkefna
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/8e4a7f6f-7d16-4712-935f-6262e2df06fc_DSC_0201.jpg?auto=compress,format&rect=0,0,5697,4069&w=1620&h=1157)
ARKÍS arkitektar leita að arkitektum og byggingafræðingum til þess að verða hluti af þverfaglegu teymi stofunnar vegna aukinna umsvifa. Framundan eru mörg spennandi verkefni jafnt á Íslandi sem erlendis og því um skemmtileg og gefandi atvinnutækifæri að ræða.
ARKÍS leita að starfsmönnum með nokkurra ára reynslu og gott vald á flestum þáttum arkitektahönnunar. Rík áhersla er lögð á frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð en jafnframt áhersla á að geta unnið vel í teymi. Þá er góð reynsla af Revit mikill kostur.
Umsóknum skal skilað til ARKÍS arkitekta ehf. með tölvupósti á arkis@ark.is. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknir skulu berast fyrir 19.febrúar.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
ARKÍS arkitektar er framsækin arkitektastofa á sviði byggingarlistar, hönnunar og skipulags.
Frá stofnun, árið 1997, hefur ARKÍS starfað bæði innanlands og á alþjóðamarkaði og unnið að fjölbreytilegum verkefnum fyrir einkaaðila og opinberar stofnanir.
Í dag starfar 39 starfsmenn hjá fyrirtækinu bæði í Kópavogi og á Selfossi.