- English
- Íslenska
Arkitektafélag Íslands augýsir eftir ábendingum vegna tilnefninga til Mies van der Rohe verðlaunanna í samtímaarkitektúr 2026

Verðlaunin eru afhent annað hvert ár. Hlutverk þeirra er að varpa ljósi á framúrskarandi verkefni á sviði arkitektúrs í Evrópu og vekja athygli á hugmyndaauðgi og tæknilegri framþróun meðal evrópskra fagmanna í byggingarlist. Frekari upplýsingar um verðlaunin má finna hér:
Arkitektafélagið má að hámarki tilnefna fimm verkefni til verðlaunanna 2026.
Verklok þeirra verkefna sem eru gjaldgeng til tilnefningar þurfa að hafa verið á milli 1. maí 2023 og 30. apríl 2025.
Arkitektafélaginu er boðið að tilnefna verk meðlima sinna sem byggð eru á Íslandi en einnig verk sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Verkin eru eftir höfunda frá öðrum Evrópulöndum en staðsett á Íslandi.
- Verkin eru eftir meðlimi Arkitektafélags Íslands en staðsett í öðrum Evrópulöndum.
Arkitektafélagið hefur skipað þriggja manna valnefnd:
- Önnu Maríu Bogadóttur arkitekt
- Árný Þórarinsdóttur arkitekt
- Hrólf Karl Cela arkitekt (formaður nefndar)
Skiladagsetning ábendinga er klukkan 12:00 á hádegi þann 30. júní 2025.
Arkitektafélag Íslands skilar tilnefningum til Mies van der Rohe Awards 14. júlí 2025.
Verðlaunaafhending verður í maí 2026.
Vinsamlegast sendið ábendingar á Arkitektafélag Íslands: ai@ai.is með yfirskriftinni: MvdR Awards 2026 - Ábending - Titill verks
Öllum er frjálst að senda ábendingar um verkefni svo lengi sem þau uppfylla skilyrði verðlaunanna.
Sé viðkomandi höfundur ekki meðlimur í Arkitektafélagi Íslands getur hann haft samband við AÍ varðandi inngöngu á netfanginu ai@ai.is