Fagurferðileg skynjun og líkamleg hlustun - erindi

Laugardaginn 24. maí frá 14:00 - 15:00 fer fram heimspekilegt erindi um sköpunarferlið í boði Leirlistafélags Íslands.
Í erindinu mun Dr. Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, umhverfisheimspekingur, fjalla um sambandið milli fagurfræði og fyrirbærafræði, eða nánar tiltekið sambandið á milli fagurferðilegrar skynjunar og fyrirbærafræðilegrar nálgunar/aðferðar og ræða hlutverk þeirra í líkamlegri (gagnrýnni og skapandi) hugsun.
Útgangspunkturinn er að fagurferðileg skynjun veitir okkur opnun inn í skynfinningu okkar fyrir umhverfi og aðstæðum sem við erum í hverju sinni og að aukin meðvitund um slíka skynjun sé mikilvæg fyrir alla hugsun og sköpun. Þessi líkamlega skynjun er einkar mikilvæg fyrir listafólk og getur gagnast þeim til að þróa nýjar hugmyndir og nálganir í list sinni.
Erindið er öllum opið og aðgangur ókeypis.
Staðsetning: Handverk og Hönnun, Eiðistorgi (við hliðina á Vínbúðinni).