Sumargleði AÍ 12. júní

Við fögnum sumri og nýjum heiðursfélaga Arkitektafélags Íslands fimmtudaginn 12. júní kl. 16:00 í Elliðaárstöð.
Við byrjum sumargleðina á leiðsögn um nýuppgerða Elliðárstöð. Magnea Guðmundsdóttir, arkitekt, mun leiðsegja okkur um stöðina en hún er hluti af Tertu - þverfaglegu hönnunarteymi sem hefur starfað að hönnun og endurnýjun Elliðaárstöðvar sem nýs áfangastaðar með almenningsrými, gestastofu, veitingastað og fræðslu.
Að leiðsögn lokinni, kl. 17:00, förum við í fyrirlestrarsal Elliðaárstöðvar þar sem Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt og leikari, verður formlega gerður að heiðursfélaga Arkitektafélags Íslands eins og samþykkt var á aðalfundi félagsins 26. mars síðastliðinn.
Að því loknu verður skálað og spjallað.
Vinsamlegast skráið ykkur á hlekknum hér að neðan svo hægt sé að áætla veitingar.
Hvar: Elliðaárstöð, Rafstöðvarvegi 6
Hvenær: Fimmtudaginn 12. júní kl. 16:00-18:00