Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Backflip tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

23. október 2026

Backflip er fellistóll hannaður af Guðmundi Lúðvík fyrir HAY. Stóllinn er endurhugsun á kunnuglegu húsgagni þar sem fellibúnaðurinn hverfur inn í bakið og fegurð, þægindi og form eru í fyrirrúmi. Backflip er tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum vara.

Í hönnun stólsins er tekist á við gamalt stef og það endurhugsað frá grunni. Fellistólar hafa löngum borið þess merki að vera aukahlutir á heimilum, stólar „til vara“. Hönnun þeirra hefur byggt á málamiðlun milli þæginda, útlits og fellanleika. Í höndum Guðmundar verður fellistóllinn fyrst og fremst góður stóll sem einnig er hægt að fella saman, og það sem áður þótti ósamrýmanlegt rennur saman í eina heild. 

Backflip stendur jafnfætis hefðbundnum stólum í daglegri notkun hvað varðar gæði og þægindi en má þar að auki fella saman með einu handtaki, hengja upp og geyma þegar hans er ekki þörf. Hann á jafnt heima við borðstofuborð heimilisins sem í fundarherbergjum og á veitingastöðum, og er aldrei hugsaður sem tímabundið sæti.

Það sem helst einkennir stólinn er snjall fellibúnaðurinn, sem er að öllu leyti falinn inni í bakinu. Stólinn er svo hægt að fella saman í einni samfelldri hreyfingu með annarri hendi. Lamir og tæknibúnaður hverfa þannig úr augsýn og virknin verður órjúfanlegur hluti stólsins í stað þess að vera viðbót við hann. Stóllinn er ekki síður fallegur þegar hann hangir uppi.

Það er mat dómnefndar að tæknileg nákvæmni og látlaust form myndi hér eina heild. Gegnheill beykiviður og mótað krossviðarbak gefa stólnum tímalaust, stílhreint og kunnuglegt yfirbragð. 

Backflip er fellistóll Guðmundar Lúðvíks fyrir HAY sem endurhugsar gamalgróið húsgagn. Fellibúnaðurinn verður hluti af forminu sjálfu í stað þess að vera viðbót og stólinn má fella saman í einni samfelldri hreyfingu með annarri hendi. Tímalaus og stílhrein hönnun sem gefur lítið upp um flókna tækni sem býr að baki.

–

Guðmundur Lúðvík er einn af fremstu húsgagnahönnuðum Íslendinga. Hann starfar í Danmörku og hefur hannað fyrir fjölda fyrirtækja þar sem gæði, fagurfræði og sjálfbærni eru í fyrirrúmi. Backflip stólinn hannaði hann í samstarfi við danska hönnunarmerkið HAY.

Verðlaunaafhending Hönnunarverðlauna Íslands 2026 fer fram í Grósku þann 5. nóvember næstkomandi ásamt samtali því tengdu. Taktu daginn frá!

Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt. Hönnunarverðlaun Íslands verða veitt í þrettánda sinn í ár og eru veitt í þremur flokkum: Vara // Staður // Verk. Auk þess verður veitt viðurkenning fyrir Bestu fjárfestinguna í hönnun og Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands.

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Íslands, með stuðningi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Íslandsstofu, Grósku, Vísindagörðum Háskóla Íslands og Bláa lóninu.

Tengt efni

  • Frakkastígur 1 tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

  • Óskaland tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

  • Baugur Bjólfs tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

Dagsetning
23. október 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Hönnunarverðlaun Íslands
  • Fagfélög

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200