Óskaland tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

Óskaland er viðbygging við samnefndan leikskóla í Hveragerði, hönnuð af marimo arkitektum, þar sem arkitektúr, innanhússhönnun, sérhannaðar innréttingar og fjölbreytt garðrými mynda leikandi og notalegt umhverfi út frá skala, sjónarhorni og upplifun barnsins. Óskaland er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum staður.
Viðbyggingin sýnir á framúrskarandi hátt hvernig hægt er að skapa hlýleg rými út frá óhefðbundnu sjónarhorni barna. Í nálgun verkefnisins er arkitektúr fyrir börn endurhugsaður og sýnt er hvernig hönnun getur verið leikandi án þess að verða bókstaflega barnaleg. Skali barnsins birtist í sjónlínum, litlum opum, innbyggðum húsgögnum og minni rýmum. Stórir gluggar tengja innra rýmið við ævintýralegan garð sem býður upp á uppgötvanir, rannsóknir og opinn leik.
Leikur barnanna í rýminu er ekki afmarkaður við ákveðin leiktæki heldur fléttaður inn í arkitektúr og landslag. Innréttingar verða að leikrýmum, bugðóttir stígar og gróður kalla á könnun og kofar með speglum leysa upp mörkin milli barns, byggingar og náttúru. Umhverfið sjálft verður þannig efniviður fyrir ímyndunaraflið.
Að mati dómnefndar skapar hönnun Óskalands hlýlega og efnisríka heild þar sem náttúrulegur viður, hófstillt litanotkun, hljóðdempandi fletir og sérhannaðar innréttingar vinna saman. Hönnun og landslag styðja hvort annað án þess að yfirgnæfa upplifunina, styrkurinn liggur í fjölbreytileika rýmanna og útisvæðisins og þeim möguleikum sem þau skilja eftir fyrir börnin sjálf
Með verkefninu er búið að skapa fjölbreytt hversdagsumhverfi sem styður jafnt við leik, nám og hreyfingu sem og ró og einveru. Í umhverfinu fá börnin einnig ólík tækifæri til að nota og túlka rýmin sjálf, að horfa, fela sig, kanna, staldra við eða leika og þau verða þannig virkir þátttakendur í umhverfi sínu.
Hönnun Óskalands er heildstæð nálgun með leikgleði, sjónarhorn og upplifun barna í fyrirrúmi. Arkitektúr og innanhússhönnun spila einstaklega vel saman við að skapa umvefjandi, efnisrík og fjölbreytt rými innanhúss og utan, rými sem bjóða börnum að kanna umhverfi sitt í gegnum opinn leik, að staldra við og skoða og að taka virkan þátt í mótun umhverfis í þeirra eigin augnhæð. Óskaland sýnir einnig fram á að markviss og heildstæð nálgun með hönnun getur samrýmst byggingu einingarhúsa.
Óskaland er unnið af Önnu Leoniak, Agnesi Krzysztonek og Helgu Björg Kjerúlf hjá marimo arkitektum.






Verðlaunaafhending Hönnunarverðlauna Íslands 2026 fer fram í Grósku þann 5. nóvember næstkomandi ásamt samtali því tengdu. Taktu daginn frá!
Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt. Hönnunarverðlaun Íslands verða veitt í þrettánda sinn í ár og eru veitt í þremur flokkum: Vara // Staður // Verk. Auk þess verður veitt viðurkenning fyrir Bestu fjárfestinguna í hönnun og Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands.
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Íslands, með stuðningi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Íslandsstofu, Grósku, Vísindagörðum Háskóla Íslands og Bláa lóninu.


