Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Sketching Bathing in Iceland tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

21. október 2026

Sketching Bathing in Iceland er verk sem fjallar um sundlaugarmenningu Íslendinga eftir Rán Flygenring. Verkið var gefið út í samnefndri bók og birtist í sýningu og baðteiknismiðjum í þremur sundlaugum í Reykjavík. Sketching Bathing in Iceland er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum verk.

Sketching Bathing in Iceland fangar sundlaugarmenningu Íslendinga einstaklega vel með húmor og léttleika. Verkið hreyfir við fólki í hráum einfaldleika sínum og er upplýsandi fyrir þá sem ekki þekkja til sundlaugamenningar Íslands sem hlaut nýlega viðurkenningu UNESCO fyrir óáþreifanlegan menningararf mannkyns.

Í bókinni skrásetur Rán á aðgengilegan og skemmtilegan hátt sérstöðu og fjölbreytileika íslenskrar sundlaugarmenningar fyrir Íslendinga en ekki síður fyrir erlenda gesti.

Verkið endurspeglar djúpan skilning á sundlauginni sem félagslegu rými í daglegu lífi Íslendinga, sem óformlegum samastað fyrir spjall, slúður og tengsl þvert á kynslóðir og ólíka þjóðfélagshópa með mismunandi uppruna og gerir þá menningu um leið aðgengilega og skiljanlega fyrir þá sem þekkja hana ekki.

Að mati dómnefndar sýnir Rán persónulega og húmoríska nálgun í teiknaðri skráningu á vettvangi í sundlaugum Íslendinga og notar þá nálgun sem leið til menningarmiðlunar sem opnar á frekara samtal og fleiri frásagnir. Rán er í senn þátttakandi og rannsakandi miðlari og handbragðið endurspeglar það. Verkið samanstendur af stemningsmyndum sem fanga vatn og andrúmsloft af næmni, með samræmdri fagurfræði, frá teikningu til sýningar og bókar.

Sketching Bathing in Iceland er framúrskarandi heildstætt verk sem skrásetur baðmenningu Íslands og miðlar henni með einstöku innsæi, næmni og húmor.

–

Rán Flygenring er margverðlaunaður íslenskur teiknari, myndhöfundur, hönnuður og rithöfundur. Hún er þekkt fyrir sérstakan, fjörugan og óhefðbundinn myndstíl og verk þar sem náttúran, umhverfið og frásagnargleðin skipa stóran sess. Hún er þar að auki hluti af teyminu sem tekur þátt í Feneyjatvíæringnum í arkitektúr árið 2027 með verkefni þar sem baðmenning Íslendinga er umfjöllunarefnið.

Verðlaunaafhending Hönnunarverðlauna Íslands 2026 fer fram í Grósku þann 5. nóvember næstkomandi ásamt samtali því tengdu. Taktu daginn frá!

Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt. Hönnunarverðlaun Íslands verða veitt í þrettánda sinn í ár og eru veitt í þremur flokkum: Vara // Staður // Verk. Auk þess verður veitt viðurkenning fyrir Bestu fjárfestinguna í hönnun og Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands.

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Íslands, með stuðningi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Íslandsstofu, Grósku, Vísindagörðum Háskóla Íslands og Bláa lóninu.

Tengt efni

  • Opið kall eftir sýningum í Norræna húsinu á HönnunarMars

  • Blásum í HönnunarMars lúðurinn! Opnað fyrir snemmskráningu 2027

  • HönnunarMars marserar inn í nýja og spennandi tíma

Dagsetning
21. október 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Hönnunarverðlaun Íslands
  • Fagfélög

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200