Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Blásum í HönnunarMars lúðurinn! Opnað fyrir snemmskráningu 2027

22. september 2026

HönnunarMars er hátíð sköpunar, hugmynda og nýrrar sýnar. Þar mætast hönnuðir, arkitektar og fyrirtæki sem hugsa stórt, ögra viðteknum hugmyndum og feta nýjar slóðir. Hvað er að gerast? Er eitthvað að breytast? Hvað er að springa út?

Þema HönnunarMars og DesignTalks 2027 er Innsýn.

Innsýn er augnablikið þegar það sem áður var falið kemur í ljós. Þegar við sjáum meira en það sem blasir við og förum að skilja það sem býr að baki. Hugmyndirnar, tilraunirnar, mistökin og óvæntu uppgötvanirnar sem urðu hluti af leiðinni að niðurstöðunni.

Þegar allt gerist hraðar og krafa um fullkomnun verður sífellt meiri viljum við skapa rými fyrir hið óvænta, hið ófullkomna, og hið mannlega. Fyrir hugmyndir sem eru enn í mótun, tilraunir sem misheppnast, spurningar sem hafa ekki enn fengið svar og smáatriði sem annars fara óséð.

Innsýn er að líta nær. Að staldra við og spyrja hvað býr undir yfirborðinu. Hvað þarf að gerast áður en hugmynd verður að verki? Hvaða ákvarðanir eru mótandi? Hvað breytist á leiðinni og hvað verður til fyrir tilviljun?

Líttu nær. Það er meira að sjá.

Vertu með á HönnunarMars 2027!

–

Snemmskráning og almenn þátttökugjöld

Snemmskráning HönnunarMars verður opin frá 22. september til 27. október.

Þeir sem skrá sig á tímabilinu fá lægri þátttökugjöld. Öllum er frjálst að sækja um þátttöku. Fagráð HönnunarMars, skipað fulltrúum fagfélaganna, Listaháskóla Íslands, Reykjavíkurborgar og hátíðarinnar, fer yfir allar umsóknir.

Þátttökugjald í snemmskráningu:

25.000 kr. + vsk. - félagar í fagfélögum Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

55.000 kr. + vsk. - þátttakendur utan fagfélaga Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

Almenn gjaldskrá eftir 27. október:

35.000 kr. + vsk. - félagar í fagfélögum Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

65.000 kr. + vsk. - þátttakendur utan fagfélaga Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs

Lokað verður fyrir almennar umsóknir þann 25. nóvember 2026, á miðnætti.

Stærri samsýningar, nemendasýningar og fyrirtæki vinsamlegast sendið póst á Klöru, dagskrárstjóra, klara@honnunarmidstod.is varðandi þátttökugjöld.

Hvað er innifalið í þátttöku?

- Skráning sýningar/viðburðar í dagskrá sem er miðlað á heimasíðu HönnunarMars.

- Skráning sýningar/viðburðar í dagskrá sem er kynnt fyrir innlendum og erlendum fjölmiðlum.

- Afnot af forriti HönnunarMars eftir Strik Studio sem endurspeglar þema hátíðarinnar og gerir þátttakendum kleift að útbúa kynningarefni úr eigin myndefni.

- Afnot af sameiginlegu kynningarefni HönnunarMars.

- Plaköt og annað kynningarefni HönnunarMars til að nýta á sýningarstað.

- Kynning á samfélagsmiðlum HönnunarMars - Meet the designers ofl.

- Tækifæri til að sækja um þátttöku í DesignMatch.

- Tækifæri til þátttöku í erlendum kynningarverkefnum.

- Forgangur til þátttöku og afsláttarkjör á HönnunarMarkaði.

- Aðstoð og ráðgjöf.

Sækja um

Sækja um

Tengt efni

  • Nýr stjórnandi HönnunarMars er Þura Stína Kristleifsdóttir

  • Framúrskarandi fagfólk mótar DesignTalks 2027

  • HönnunarMars marserar inn í nýja og spennandi tíma

Dagsetning
22. september 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • HönnunarMars
  • Fagfélög
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200