Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Framúrskarandi fagfólk mótar DesignTalks 2027

21. september 2026

DesignTalks er opnunarviðburður HönnunarMars sem hefur um árabil verið vettvangur fyrir alþjóðlegt og íslenskt samtal um framsækna hönnun, arkitektúr og samfélag. Þar koma saman hönnuðir, arkitektar og skapandi hugsuðir saman og  deila nýjum hugmyndum, verkefnum, lausnum og reynslu. 

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs hefur skipað listrænt teymi framúrskarandi fagfólks úr ólíkum greinum hönnunar sem vinnur að mótun þema, innihalds og skapandi stefnu DesignTalks 2027. 

Með nýju fyrirkomulagi er lögð áhersla á að virkja þekkingu, reynslu og tengsl innan samfélags hönnunar- og arkitektúrs og skapa þannig grundvöll fyrir spennandi dagskrá DesignTalks. Unnið hefur verið með opið og fjölmennt hugarflug. Vinna nýja teymisins byggir á framúrskarandi starfi Hlínar Helgu Guðlaugsdóttur sem hefur nú stigið til hliðar sem listrænn stjórnandi DesignTalks.

„DesignTalks hefur verið helsti vettvangur fyrir framsækið samtal um hönnun og arkitektúr. Haldið var opið hugarflug og það er spennandi að geta hleypt inn nýjum og ólíkum röddum og sjónarmiðum við mótun dagsins. Listræna teymið býr yfirgripsmikilli reynslu, þekkingu og tengslum sem munu vonandi endurspeglast í fjölbreyttri og áhugaverðri dagskrá og um leið styrkja enn frekar samtal og tengsl á milli íslenskrar hönnunar og alþjóðlegrar.“ segir Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs. 

Teymið skipa Anna Clausen, stílisti og listrænn stjórnandi, Jón Helgi Hólmgeirsson, vöruhönnuður, tónlistarmaður og fagstjóri MA Design and New Environments við Listaháskóla Íslands, Magnea Þ. Guðmundsdóttir, arkitekt og stofnandi og eigandi teiknistofunnar STIKU, Nils Wiberg, hönnuður gagnvirkni og meðeigandi Gagarín og Sigurður Oddsson, hönnunarstjóri Aton.  

Teymið vinnur þvert á ólíkar greinar og hefur að leiðarljósi að DesignTalks endurspegli breitt svið hönnunar og arkitektúrs og skapi vettvang fyrir samtal sem nær út fyrir hönnunarsamfélagið sjálft. Markmiðið er að DesignTalks sé ekki aðeins vettvangur innblásturs fyrir hönnuði og arkitekta heldur einnig fyrir fólk frá ólíkum sviðum samfélagsins sem vinna að því að móta framtíðarsýn og lausnir.

DesignTalks 2027 verður haldið í Silfurbergi í Hörpu miðvikudaginn 7. apríl 2027.

Anna Clausen, stílisti og listrænn stjórnandi
Jón Helgi Hólmgeirsson, vöruhönnuður, tónlistarmaður og fagstjóri MA Design and New Environments við Listaháskóla Íslands
Magnea Þ. Guðmundsdóttir, arkitekt og stofnandi og eigandi teiknistofunnar STIKU
Nils Wiberg, hönnuður gagnvirkni og meðeigandi Gagarín
Sigurður Oddsson, hönnunarstjóri Aton

Listrænt teymi DesignTalks

Anna Clausen
Anna hefur starfað í tískuheiminum um árabil sem stílisti og listrænn stjórnandi, auk þess að hafa unnið með alþjóðlegum tískumiðlum á borð við Vogue og Dazed & Confused. Hún stundaði nám við London College of Fashion og kennir nú við fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands. Anna hefur jafnframt komið að HönnunarMars undanfarin ár, meðal annars sem listrænn stjórnandi tískudagskrár hátíðarinnar í Norræna húsinu 2026 og Young Talents of Fashion.

Jón Helgi Hólmgeirsson
Jón er vöruhönnuður, tónlistarmaður og fagstjóri MA Design and New Environments við Listaháskóla Íslands. Hann vinnur gjarnan á mörkum hönnunar, tækni og tónlistar og hefur meðal annars starfað sem yfirhönnuður hjá tónlistarfyrirtækinu Genki Instruments. Meðal nýlegra verkefna hans eru Hljómkassar, hátalarar út íslenskum efnivið sem hann þróaði ásamt Halldóri Eldjárn en þeir hlutu tilnefningu til Hönnunarverðlauna Íslands 2024. Jón Helgi hefur meðal annars hlotið Hönnunarverðlaun Íslands og Red Dot Design Award.

Magnea Þ. Guðmundsdóttir
Magnea er arkitekt og stofnandi og eigandi teiknistofunnar STIKU. Hún hefur komið að fjölbreyttum verkefnum á sviði arkitektúrs og skipulags, allt frá borgarhönnun og skipulagi til bygginga og sýningarhönnunar. Hún hefur um árabil verið virk í faglegri umræðu um byggt umhverfi, gæði arkitektúrs og samfélagslega ábyrgð hönnunar. Magnea hefur fjallað um hönnun borgarumhverfis í Víðsjá á Rás 1 og flutti erindi á DesignTalks.

Nils Wiberg
Nils Wiberg er gagnvirkni hönnuður og meðeigandi Gagarín, þar sem hann hefur starfað frá árinu 2009. Hann hefur unnið að verkefnum þar sem hönnun, miðlun og tækni mætast og einnig kennt og leitt vinnustofur á sviði gagnvirkni og framtíðarhönnunar, meðal annars í samstarfi við MA Design & New Environments við Listaháskóla Íslands og Design Academy Eindhoven. Nils hefur komið að fjölmörgum margverðlaunuðum sýningar- og upplifunar verkefnum Gagarín hér heima og erlendis. 

Sigurður Oddsson
Siggi Odds er margverðlaunaður þverfaglegur hönnuður og hönnunarstjóri Aton. Hann hefur starfað bæði hér heima og í New York þar sem hann bjó um tíma. Hann hefur meðal annars unnið að vörumerkjaþróun og hönnun fyrir Apple, Saint Laurent, Equinox og Atmos Magazine. Verkefni Sigga hafa verið fjölbreytt í gegnum tíðina og hefur hann hlotið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar. 

Ef þú ert með tillögu að fyrirlesara má endilega senda hugmyndir á info@honnunarmidstod.is.

Forsala á DesignTalks hefst 2. nóvember á tix.is og harpa.is.

Tengt efni

  • HönnunarMars marserar inn í nýja og spennandi tíma

  • „Við eigum fullt erindi í þetta samtal“

Dagsetning
21. september 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • DesignTalks
  • HönnunarMars
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
  • Greinar

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200