„Við eigum fullt erindi í þetta samtal“

„Ég ætlaði varla að trúa mínum eigin augum þegar ég sá að allar þessar stórstjörnur úr hönnunar heiminum væru að koma hingað til Íslands,“ segir grafíski hönnuðurinn Rósa Hrund Kristjánsdóttir. Tilefnið er AGI Open, alþjóðleg hönnunarráðstefna sem fer fram í Reykjavík 1. og 2. október og leiðir saman einstakan hóp fólks sem hefur haft mótandi áhrif á grafíska hönnun og sjónræna menningu síðustu áratuga.
Paula Scher, Christoph Niemann, Robert Wong, Brian Collins, Julia Hasting, Veronica Fuerte, Irene Pereyra, Liza Enebeis, Ale Paul og Zach Lieberman eru aðeins nokkur þeirra nafna sem verða í Reykjavík þegar alþjóðlega hönnunarráðstefnan AGI Open verður haldin hér á landi.
Fyrir íslenska hönnunarsenu er um einstakt tækifæri að ræða. AGI Open fylgir árlegu þingi Alliance Graphique Internationale á milli borga og því er um að ræða viðburð sem kemur ekki aftur til Reykjavíkur í bráð. Í stað þess að þurfa að ferðast til stórborga erlendis til að sækja innblástur frá fremsta fagfólki heims kemur óvenjulega stór hópur þess hingað.
„Þetta er fólk sem maður hefur fylgst með ryðja brautina fyrir aðra og verið innblásin af í áraraðir,“ segir Rósa. „Þetta er svona ráðstefna sem ég myndi leggja á mig að fara til útlanda að sjá. Ég vona innilega að enginn hönnuður missi af þessu einstaka tækifæri sem kemur ekki aftur í bráð.“
Arnar Halldórsson hjá Brandenburg tekur í sama streng. „Við á Íslandi eigum að vera stórhuga þegar kemur að skapandi greinum. Að fá AGI Open hingað er stórviðburður og tækifæri til að setja meiri kraft í það sem við erum að gera,“ segir Arnar. Hann segir ekki síður mikilvægt að íslenska hönnunarsenan fái tækifæri til að taka þátt í samtalinu við þennan hóp.
„Hér kemur saman fólk sem hefur mótað það hvernig heimurinn sér hluti, skilur þá og upplifir. Við eigum fullt erindi í það samtal.“
Fólkið á bakvið það sem við sjáum
Það er erfitt að gera sér grein fyrir breiddinni í hópnum fyrr en nöfnin og verkefnin eru skoðuð nánar. Robert Wong er einn af stofnendum Google Creative Lab og hefur verið valinn einn áhrifamesti hönnuður Bandaríkjanna. Paula Scher er einn þekktasti grafíski hönnuður samtímans og hefur um áratugaskeið verið lykilmanneskja hjá Pentagram og Netflix serían Abstract tók einmitt fyrir bæði hana og Christoph Niemann sem hefur meðal annars skapað fjölda forsíðna fyrir The New Yorker og The New York Times Magazine og gerði til dæmis fyrstu gagnvirku forsíðu The New Yorker með viðbættum veruleika. Leturhönnuðurinn Ale Paul rekur Sudtipos Type Foundry og hefur komið Argentínu á kortið á alþjóðlegu senunni. Liza Enebeis er listrænn stjórnandi hollensku hönnunarstofunnar Studio Dumbar, brautryðjandi á sínu sviði og Julia Hasting stýrir listrænni sýn hjá hinu virta alþjóðlega bókaforlagi Phaidon.



AGI Open stendur yfir í tvo daga en dagarnir verða mjög ólíkir. Fimmtudaginn 1. október tekur Gamla bíó á móti gestum á stórum fyrirlestradegi, en föstudaginn 2. október færist dagskráin yfir í Grósku og breytir algjörlega um takt. Þar verður hægt að velja úr fjölbreyttum vinnustofum og samtölum um lífið í bransanum út frá ýmsum vinklum.
Hér er á ferð sjaldgæft tækifæri til að komast nær fólkinu á bakvið verkin, ræða fagið og skiptast á hugmyndum. Nú er hægt að tryggja sér dagpassa á 1.okt í Gamla bíó á 21.900 kr. á TIX, en meðlimir FÍT og Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs njóta auk þess sérstakra kjara á tveggja daga passa, á 24.900 kr.
Stórkostleg gjöf fyrir senuna
„Þetta er náttúrulega algjör veisla fyrir hönnuði og skapandi leiðtoga. Það er líka spenningur í hópnum að kynnast íslenskum kollegum og við höfum lagt uppúr því að skapa slík tækifæri. Í raun er þetta bara stórkostleg gjöf fyrir senuna,“ segir Hlín Helga Guðlaugsdóttir, skipuleggjandi ráðstefnunnar.
Alls taka yfir 40 AGI meðlimir virkan þátt í dagskránni. Kynnar eru Hjalti Karlsson og Jan Wilker, stofnendur hönnunarstofunnar Karlssonwilker í New York, en þeir eru einnig listrænir stjórnendur ráðstefnunnar. Í tvo daga verður Reykjavík því samkomustaður hjá þessu fagfólki sem hefur mótað og heldur áfram að móta hvernig heimurinn lítur út.






