Íslensk hönnun hlýtur Graphite Pencil á D&AD verðlaununum

Hönnunarsamstarf Siggi Odds Office og íslensku letursmiðjunnar Or Type hlaut á dögunum Graphite Pencil á D&AD verðlaununum í London fyrir hönnun á auðkenni Njarðar. Verðlaunin hlutu þau í flokknum Type Design & Lettering og er þetta í fyrsta sinn sem íslenskt verkefni hlýtur D&AD verðlaun án samstarfs við erlenda hönnunarstofu.
Auðkenni Njarðar byggir á hugmyndinni um umbreytingu sjávar í málm og vísar þannig beint í starfsemi fyrirtækisins, sem vinnur að framleiðslu magnesíums úr sjó með hreinni íslenskri orku. Sérhannað breytilegt letur er kjarninn í auðkenninu og færist á milli tveggja forma; annars vegar mýktar og hreyfingar sjávar og hins vegar styrks og stöðugleika magnesíummálms. Letrið er notað í gegnum allt auðkennið og nýtur sín sérstaklega í hreyfingu.
„Það er til marks um metnaðinn og vandvirknina hjá þeim sem standa að verkefninu að leggja í eins metnaðarfulla hönnunarvinnu og farið var í kringum einkennið. Ég er þakklátur fyrir það traust sem okkur var sýnt í þessu skemmtilega ferli og vildi óska að fleiri tækju til fyrirmyndar kjarkinn sem forysta Njarðar hefur,“ segir Sigurður Oddsson, hönnunarstjóri Aton, sem leiddi verkefnið.
Hjá Nirði ríkir sömuleiðis ánægja með viðurkenninguna.

„Við erum afar stolt af því að hönnun Njarðar hafi hlotið Graphite Pencil verðlaun hjá D&AD. Frá upphafi vildum við að einkenni fyrirtækisins endurspeglaði kjarna og gildi verkefnisins, umbreytingu sjávar í málm með hreinni íslenskri orku og virðingu fyrir auðlindum landsins. Siggi Odds Office og Guðmundur hjá Or Type náðu að fanga þá hugsun með einstakri nákvæmni, fegurð og krafti. Þessi viðurkenning er verðskulduð staðfesting á þeirri framúrskarandi hönnunarvinnu sem lögð var í verkefnið.“
Sigurður Oddsson hjá Siggi Odds Office leiddi hönnun verkefnisins en Or Type sá um leturhönnun undir stjórn Guðmundar Úlfarssonar ásamt Mads Freund Brunse og Victor Gérard. Sigurður Ýmir Kristjánsson og Guðni Þór Ólafsson komu einnig að hönnun og hreyfigrafík verkefnisins.
D&AD verðlaunin eiga sér yfir 60 ára sögu og eru meðal þekktustu alþjóðlegu verðlauna á sviði hönnunar og skapandi greina. Graphite Pencil er veittur verkefnum sem þykja skara fram úr í handverki, hugmynd og framkvæmd.


