Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Heimsþekktir hönnuðir mæta til Reykjavíkur á AGI Open

13. ágúst 2026

Hönnunarheimurinn mætir til Reykjavíkur í haust þegar AGI Open fer fram dagana 1.–2. október. Yfir 30 hönnuðir hvaðanæva að úr heiminum eru staðfestir í dagskrána og fyrstu fimm nöfnin hafa nú verið kynnt til leiks. Sannkölluð vítamínsprauta fyrir íslenskt skapandi samfélag. Forsölu miða lýkur 16. ágúst.

AGI Open er alþjóðleg hönnunarráðstefna á vegum Alliance Graphique Internationale (AGI), samtaka sem leiða saman framúrskarandi hönnuði og skapandi fólk hvaðanæva að úr heiminum. Í október verður Reykjavík einn af suðupunktum alþjóðlega hönnunarheimsins þegar yfir hundrað meðlimir AGI koma hingað til lands vegna alþjóðlegrar hönnunarráðstefnu sem er haldin árlega og nú í fyrsta sinn á Íslandi.

Fyrstu fimm nöfnin hafa nú verið opinberuð: Christoph Niemann, Julia Hasting, Verònica Fuerte, Javier Jaén og Siggi Eggertsson. Öll hafa þau skapað sér sterka og afar ólíka rödd á alþjóðlegum vettvangi.

Christoph Niemann er heimsþekktur listamaður, höfundur og kvikari sem hefur skapað sér einstakan sess í alþjóðlegri sjónrænni menningu. Verk hans birtast reglulega á forsíðum The New Yorker og The New York Times Magazine og hafa verið sýnd víða um heim. Hann er jafnframt höfundur fjölda bóka og þekktur fyrir einstaka frásagnarlist og hugmyndauðgi, en heill þáttur af Netflix-þáttaröðinni Abstract: The Art of Design var helgaður verkum hans.

Skoðaðu verk Christoph Niemann

Julia Hasting er bókahönnuður og Creative Director hjá hinu heimsþekkta list- og bókaforlagi Phaidon Press, þar sem hún hefur starfað í um tvo áratugi. Hún hefur haft mikil áhrif á sjónræna ásýnd útgáfunnar og hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna fyrir bókahönnun sína.

Skoðaðu verk Juliu Hasting

Verònica Fuerte er stofnandi og Creative Director Hey Studio í Barcelona, sem hefur vakið mikla athygli á alþjóðavettvangi fyrir sterkt og auðþekkjanlegt myndmál. Hún situr jafnframt í stjórn Art Directors Club og Canva Designer Advisory Board.

Kynntu þér Hey Studio

Javier Jaén starfar á mörkum grafískrar hönnunar, myndlýsinga og sjónrænnar frásagnar og er þekktur fyrir leikandi og hugmyndaríkt myndmál. Verk hans hafa meðal annars birst hjá The New York Times, The New Yorker, Time og National Geographic og hann hefur unnið fyrir aðila á borð við UNESCO, Louis Vuitton, Netflix og Microsoft.

Skoðaðu verk Javier Jaén

Siggi Eggertsson er íslenskur teiknari og listamaður með einstakt og auðþekkjanlegt sjónrænt tungumál þar sem litir, rúmfræði og mynstur leika stórt hlutverk. Hann býr og starfar í Berlín og kemur nú fram á Íslandi í fyrsta sinn um langa hríð.

Skoðaðu verk Sigga Eggertssonar

Á erindi til allra skapandi huga

Þó að bakgrunnur flestra þeirra sem koma fram sé grafísk hönnun, er þetta fólk að fást við allt milli himins og jarðar á sviði sjónrænnar menningar og miðlunar hjá fjölbreyttri flóru auglýsingastofa, útgáfufyrirtækumog hönnunarstofa og stórfyrirtækjum á borð við Pentagram og Google. Þessi ráðstefna því sannkölluð vítamínsprauta fyrir allar skapandi greinar og ekki síður ætlað fólki sem starfar á auglýsingastofum, í myndlist, miðlun, markaðsmálum, ljósmyndun, kvikmyndum, bókaútgáfu og öðrum skapandi greinum.

AGI Open fer fram 1. - 2. október með blandaðri dagskrá fyrirlestra, samtölum, vinnustofum og tækifærum til tengslamyndunar.

AGI Open ráðstefnan er unnin í samstarfi við FÍT og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs. Listræn stjórn er í höndum Karlssonwilker. 

Ráðstefnan er öllum opin og forsölu lýkur 16. ágúst. Eftir það munu félagar FÍT og annarra aðildarfélaga Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs njóta sérstakra vildarkjara.

Nánar um AGI Open og dagskrána

Tryggðu þér miða á tix.is!

AGI Open miðasala

Tengt efni

  • Alþjóðlega hönnunarsenan í Reykjavík í haust - Forsala hafin

  • Hönnuður í fókus: Hulda Jónsdóttir

  • Hvað er að frétta? Miðstöðin opnar á ný eftir sumarfrí og þétt dagskrá framundan í haust

Dagsetning
13. ágúst 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • AGI Open
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
  • HÖNNUNARMIÐSTÖÐ
  • FÍT

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200