Erum við að móta framtíðina eða bara að elta hana?

Christian Bason hefur um árabil unnið á mörkum hönnunar, stjórnunar og samfélagsbreytinga. Hann kemur til Íslands og heldur MasterClass á vegum Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs í Grósku 16. september. Í viðtali við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs ræðir hann meðal annars námskeiðið þar sem hann býður stjórnendum og fagfólki í skapandi greinum, arkitektum, hönnuðum og öðrum sem eru að vinna í umhverfi sem er að breytast mjög hratt, upp á áhugaverða aðferðafræði sem er byggð á bókinni hans Expand.
Christian Bason er stjórnmálafræðingur að mennt en hönnun hefur verið rauður þráður í starfi hans um árabil. Hann stýrði MindLab, nýsköpunarteymi dönsku ríkisstjórnarinnar, verið forstjóri Danish Design Center um árabil þar sem hann starfaði náið með fyrirtækjum og hefur skrifað fjölda bóka um hönnun, nýsköpun og leiðtogastarf. Leið hans inn í heim hönnunar hófst hjá MindLab.
„Ég áttaði mig á því að styrkur hönnuða fólst ekki aðeins í skapandi vinnubrögðum. Þeir höfðu líka markvissar leiðir til að fá borgara og aðra notendur að borðinu þegar verið var að þróa þjónustu og móta stefnu. Það vakti áhuga minn á hönnun,“ segir Christian.
Áhugi hans á hönnun varð síðar að doktorsrannsókn á því hvernig hönnun getur nýst til að leysa stórar samfélagslegar áskoranir.
Við þurfum að hugsa stærra
Framtíðin skipar stóran sess í starfi Christians, en lang flestir nálgast hana út frá því sem við þekkjum nú þegar. „Við horfum gjarnan til framtíðar út frá því hvernig heimurinn lítur út í dag, í stað þess að spyrja: Hvernig viljum við að framtíðin verði?“
Þessi hugsun er kjarninn í bókinni Expand: Stretching the Future by Design, sem Christian skrifaði ásamt Jens Martin Skibsted. Þar færa þeir rök fyrir því að við þurfum að hugsa stærra og til lengri tíma ef við ætlum að takast á við flóknar áskoranir framtíðarinnar. Christian telur jafnframt að design thinking hafi að einhverju leyti verið einfölduð of mikið.

„Við höfum gert þau mistök að líta á design thinking sem ákveðna aðferð eða ferli. En þetta er miklu frekar hugsunarháttur, aðferðarfræði og grundvallarnálgun við nýsköpun.“
Getur góð hönnun verið slæm?
Ögrandi hugmynd í bókinni Expand er að ekki sé lengur nóg að hanna eingöngu út frá þörfum manneskjunnar. Það þurfi líka að horfa til áhrifa á samfélagið, náttúruna og framtíðina. Getur eitthvað þá verið vel hannað fyrir okkur en um leið haft slæmar afleiðingar?
„Já. Góð hönnun hefur átt sinn þátt í að knýja áfram fjöldaframleiðslu og ofneyslu sem hefur gengið mjög nærri jörðinni. Sama má segja um stafræna neyslu sem getur ógnað andlegri heilsu okkar,“ segir Christian. Þess vegna telur hann að við þurfum að endurskoða hvað við eigum við þegar við tölum um góða hönnun.
„Við þurfum að finna betra jafnvægi og endurskoða hvaða gildi eiga að ráða för. Við þurfum nýtt siðferði í hönnun.“
Við segjumst vilja breytingar en viljum við breytast sjálf?
Eftir áralangt starf með fyrirtækjum, stjórnvöldum og stofnunum sér Christian einn endurtekinn þátt aftur og aftur. „Fyrirtæki og stofnanir líta allt of oft á sköpun og hönnun sem munað, í stað þess að líta á skapandi hugsun sem grundvallarþátt í því hvernig við nálgumst verkefni og leitum nýrra lausna.“
Á sama tíma vilja flest fyrirtæki meiri nýsköpun og breytingar. En vilja stjórnendur raunverulega umbreytingu eða framfarir án þess að þurfa sjálfir að breytast? Ekki situr á svörum hjá Christian.
„Oftast það síðarnefnda! Stjórnendur átta sig oft ekki á því hversu mikilvægu hlutverki hönnun getur gegnt í stefnumótun og verðmætasköpun.“ Einnig telur hann að hönnuðir mættu horfa meira til þess á hvaða forsendum ákvarðanir eru teknar af stjórnendum innan fyrirtækja og þeirra ólíku hagsmuna sem þar takast á.
Áskorun úr eigin starfsumhverfi
Á MasterClass Christian í Grósku 16. september verður ekki um hefðbundinn fyrirlestur að ræða. Þátttakendur koma með raunverulegt verkefni eða áskorun úr eigin starfsumhverfi og vinna með hana út frá aðferðafræðinni í Expand. Christian kynnir nálgunina og raunveruleg dæmi áður en þátttakendur fá að beita henni á eigin verkefni og fá endurgjöf frá honum.
Námskeiðið hentar stjórnendum og fagfólki í skapandi greinum, arkitektum, hönnuðum og fólki í nýsköpun og stefnumótun, frumkvöðlum og öðrum sem vilja nálgast verkefni sín með nýjum hætti.
Hvað vill Christian að þátttakendur taki með sér úr námskeiðinu?
„Ég vil að þátttakendur öðlist víðari sýn, meiri metnað og skapandi nálgun á framtíð eigin starfsemi og sjái ný tækifæri til að skapa verðmæti fyrir viðskiptavini sína, samfélagið og sjálfa sig.“
MasterClass með Christian Bason fer fram í Grósku miðvikudaginn 16. september kl. 13:00 - 15:30. Skráningu lýkur mánudaginn 14. september.
Athugið að langflest stéttarfélög bjóða upp á endurmenntunarstyrki.


