Stóra breytingin! Horft til framtíðar á fyrsta fyrirlestri vetrarins

Á fyrsta fyrirlestri vetrarins hjá Miðstöð hönnunar og arkitektúrs beinum við sjónum að breytingum og framtíðinni. Hvaða breytingar eru í vændum og hvernig getum við undirbúið okkur sem best fyrir það sem tekur við?
Við lifum á tímum mikilla breytinga þar sem við erum stöðugt að endurskilgreina hvernig við vinnum, búum, sköpum og tengjumst hvert öðru. Hvernig greinum við þær breytingar sem skipta raunverulega máli? Hvaða áhrif munu þær hafa á fyrirtæki, störf, stofnanir og okkar daglega líf. Getum við hugsanlega gert meira en bara að bregðast við framtíðinni - jafnvel tekið þátt í að móta hana?
Erindi flytja Christian Bason, Ph.D, sérfræðingur, rithöfundur og fyrirlesari sem er þekktur fyrir frumkvöðlastarf á sviði nýsköpunar og hönnunar og Bergur Ebbi Benediktsson, framtíðarfræðingur og rithöfundur sem hefur um árabil fjallað um áhrif tæknibreytinga, tíðaranda og breyttra samfélagsgilda á líf okkar og sjálfsmynd.
Að loknum erindum verða snarpar umræður um framtíðina sem Christian og Bergur Ebbi taka þátt í ásamt Selmu Rut Þorsteinsdóttur yfirsköpunarstjóra hjá auglýsingastofunni Pipar og formanni Sambands íslenskra auglýsingastofu og Halldóru Vífilsdóttur, arkitekt og framkvæmdastjóra Nordic Office of Architecture. Bergur Finnbogason sköpunarstjóri hjá Fenris Creation leiðir umræðurnar. Hvað er fram undan? Hvað vekur okkur til umhugsunar? Hvar liggja tækifærin? Og ekki síst, hvaða framtíð viljum við sjálf taka þátt í að skapa?
Fyrirlesturinn fer fram í stóra fyrirlestrarsal Grósku. Húsið opnar kl. 8:30 með kaffi og croissant áður en dagskráin hefst.
Christian Bason er danskur stjórnmálafræðingur og hönnunarhugsuður (Ph.D.) sem er þekktur fyrir frumkvöðlastarf í nýsköpun og hönnun innan opinbera geirans og í atvinnulífi, fyrst sem stjórnandi MindLab og síðar forstjóri Danish Design Center. Hann hefur um árabil starfað á alþjóðavettvangi við hönnun, nýsköpun, leiðtogastarf og umbreytingar í samfélaginu. Í dag er Bason meðstofnandi Transition Collective auk þess að vera vinsæll fyrirlesari og ráðgjafi um sjálfbærar umbreytingar, leiðtogahæfni og opinbera nýsköpun. Hann er höfundur og meðhöfundur fjölmargra bóka, þar á meðal Expand: Stretching the Future by Design og Leading Public Sector Innovation: Co-creating for a Better Society. Hann er með doktorsgráðu frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn og meistaragráðu í stjórnmálafræði frá Háskólanum í Árósum.


