Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Hönnuður í fókus: Sóldís Finnbogadóttir

7. september 2026

Hönnuður í fókus í septembermánuði er Sóldís Finnbogadóttir, grafískur hönnuður hjá Studio Dumbar. Þegar Sóldís Finnbogadóttir hélt til Rotterdam sumarið 2021 var planið að dvelja þar í þrjá mánuði í starfsnámi hjá Studio Dumbar. Fimm árum síðar er hún þar enn. Sóldís hefur á þeim tíma unnið sig inn í eitt þekktasta hönnunarstúdíó Hollands, tekið þátt í stórum alþjóðlegum verkefnum og fylgst úr návígi með því hvernig tæknin er að umbreyta starfi grafíska hönnuðarins. Hún segir frá fyrstu skrefunum í faginu, lífinu hjá Studio Dumbar, gleraugum án styrks sem áttu að gera hana aðeins meira „professional“ og því hvers vegna íslenskir hönnuðir mættu stundum vera óhræddari við að taka pláss.

Sóldís er uppalin í Reykjavík en hefur síðustu fimm ár búið og starfað í Rotterdam í Hollandi. Hún útskrifaðist úr grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2020, eftir að hafa meðal annars tekið skiptinám í Gent í Belgíu árið 2018. Hún lýsir sjálfri sér sem forvitinni, utan við sig og kaotískri og segir að fyrstu tilraunirnar í grafískri hönnun megi mögulega rekja aftur til barnæskunnar.

„Sem barn elskaði ég Séð & Heyrt blöðin og hannaði mín eigin slúðurblöð í Paint og Word. Það hefur mögulega verið mín fyrsta tilraun í umbroti,“ segir Sóldís. Það lá þó alls ekki fyrir að grafísk hönnun yrði hennar starfsvettvangur. Eftir menntaskóla stefndi Sóldís í allt aðra átt. 

„Ég ætlaði mér að læra afbrotafræði, en einhvern veginn náði vinkona mín að sannfæra mig um að koma í Myndlistaskóla Reykjavíkur. Þar kviknaði áhuginn á hönnun og list fyrir alvöru sem varð svo til þess að ég sótti um í grafíska hönnun við Listaháskóla Íslands.“

Starfsnám sem varð að fimm árum í Rotterdam

Eftir útskrift tók Sóldís að sér sjálfstæð verkefni samhliða vinnu í grunnskóla og nýtti tímann til að byggja upp möppuna sína. „Ég sótti um hjá ábyggilega öllum hönnunar- og auglýsingastofum landsins en fékk enga vinnu. Ég endaði því á að vinna í grunnskóla samhliða því að taka að mér freelance verkefni hér og þar til þess að safna í portfolio möppu,“ segir Sóldís.

Sumarið 2021 ákvað hún síðan að prófa fyrir sér erlendis. „Ég var þá komin með frekar mikið leið á því að vera á Íslandi og sótti um hjá örugglega 30 hönnunarstofum víðs vegar um Evrópu. Þrjár þeirra buðu mér starfsnám.“

Ein þeirra var Studio Dumbar í Rotterdam, stúdíó sem Sóldís hafði fylgst með lengi.

„Mér til mikillar ánægju og undrunar var Studio Dumbar ein þeirra. Ætli hún hafi ekki verið ein af fyrstu hönnunarstofunum sem ég byrjaði að fylgjast með á Instagram þegar áhuginn á grafískri hönnun kviknaði hjá mér. Það var því mikill heiður fyrir mig að fá allt í einu tækifæri til að fara þangað í starfsnám.“ Starfsnámið átti að vara í þrjá mánuði en fljótlega varð ljóst að Sóldís hafði ekki mikinn áhuga á að halda heim að þeim loknum.

„Ég elskaði það svo mikið að ég gat ekki hugsað mér að fara strax aftur til Íslands. Ég spurði því Lizu, creative director hjá Studio Dumbar, hvort það væri möguleiki fyrir mig að halda áfram að vinna á stúdíóinu að starfsnáminu loknu, sem hún samþykkti. Planið var því upphaflega að vera hér í þrjá mánuði, en núna, fimm árum síðar, er ég enn hér.“

„Ég keypti mér meira að segja gleraugu án styrks“

Að ganga inn á eitt þekktasta hönnunarstúdíó Hollands sem nýútskrifaður íslenskur hönnuður var töluvert stökk. „Það var klárlega mjög yfirþyrmandi til að byrja með. Ég held að fyrstu dagana hafi ég nokkrum sinnum farið inn á klósett að gráta smá, af því mér fannst þetta svo mikil tilbreyting,“ segir Sóldís og bætir við að óöryggið hafi ekki síst snúist um að finna sinn stað í nýju og mun stærra vinnuumhverfi.

„Maður var auðvitað óöruggur að koma inn á svona stóra stofu þar sem manni fannst allir vera með allt á hreinu. Allt í einu var allt svo stórt og corporate miðað við það sem ég þekkti. Ég man til dæmis að ég var í miklu áfalli yfir fjölda fundarherbergja á stofunni.“

Hún hafði líka áhyggjur af því að enskan væri ekki nógu góð og reyndi með ýmsum hætti að falla inn í umhverfið.

Verkefni Sóldísar fyrir Transavia flugfélagið

–

„Ég held að ég hafi almennt verið að reyna að finna út hvernig ég ætti að passa inn í þetta nýja umhverfi. Ég keypti mér meira að segja gleraugu án styrks, þrátt fyrir að vera með fullkomna sjón, af því mér fannst ég líta meira professional út með þau,“ segir Sóldís og hlær. 

Tilraunin entist þó ekki lengi.

„Ég endaði svo á því að nota þau ábyggilega svona þrisvar.“

Óöryggið hvarf þó fljótt og í dag segir Sóldís þessa reynslu hafa verið eina þá dýrmætustu sem hún hefur fengið. „Þó það hafi verið stressandi í byrjun var það á sama tíma mjög lærdómsríkt og þroskandi að vera eiginlega bara kastað út í djúpu laugina í nýju landi þar sem maður þekkir engan.“

Samstarfsfólkið hafi þar skipt miklu máli en mörg þeirra eru meðal hennar nánustu vina í dag.

Mikið líf og mikið samtal í vinnunni

Vinnudagarnir hjá Studio Dumbar eru fjölbreyttir en Sóldís segir samtal og samvinnu vera stóran hluta af menningu stofunnar. Vinnudagurinn byrjar klukkan níu en Sóldís viðurkennir að hún sé oftast mætt nokkrum mínútum yfir. Dagurinn samanstendur gjarnan af fundum þar sem teymin fara yfir stöðu verkefna og á milli funda er unnið af fullum krafti.

„Á sama tíma er passað upp á að það sé gaman í vinnunni. Það er oft mikið líf á stofunni, alltaf tónlist í gangi og fólk að fara á milli og spjalla, sýna hvað það er að gera og fá álit frá hvort öðru.“

Þetta opna samtal í kringum verkefnin sé eitt af því sem Sóldís kann best að meta. Mikill metnaður sé lagður í vinnuna en stemningin um leið félagsleg og afslöppuð. „Allir eru duglegir að leita eftir skoðunum annarra og deila sínum eigin. Við erum líka öll mjög góðir vinir og ég hlakka alltaf til að mæta í vinnuna,“ segir hún.

Fagið breyst á ótrúlega skömmum tíma

Studio Dumbar hefur lengi verið þekkt fyrir mikla áherslu á hreyfihönnun en undanfarin ár hafa skapandi forritun, ný tækni og nú gervigreind orðið æ stærri hluti af vinnunni. Sóldís segir breytingarnar hafa verið miklar á þeim tiltölulega stutta tíma sem hún hefur starfað við fagið.

Verkefni Sóldísar fyrir Feyenoord

–

„Mér finnst eiginlega klikkað hvað starfið hefur breyst mikið á þeim fimm árum sem ég hef verið hér. Þegar ég hóf störf var hreyfihönnun þegar stór þáttur í starfsemi Studio Dumbar en síðan þá hafa creative coding og nú er gervigreind orðin meira áberandi innan fagsins.“

Gervigreind sé jafnframt farin að koma mun meira inn í samtalið við viðskiptavini, sem margir hverjir séu sjálfir byrjaðir að prófa tækin. „Ég myndi segja að það ýti á okkur sem hönnuði að fylgjast með þróuninni og finna okkar eigin leiðir til að nýta tæknina,“ segir Sóldís sem leggur þó áherslu á að gervigreindin sjálf sé aldrei aðalatriðið.

„Mér finnst ekki skipta mestu máli hvaða tól maður notar, heldur hvernig þau eru notuð. Eftir því sem tæknin verði aðgengilegri verður jafnvel enn mikilvægara að hönnuðir treysti eigin innsæi. Þú átt að geta fundið það sjálfur þegar það sem þú ert að gera er einlægt og þegar tólið er farið að taka yfir. Tæknin á að styðja við hugmyndina, ekki stýra henni,“ segir hún.

Feyenoord á götum Rotterdam

Eitt af þeim verkefnum sem stendur sérstaklega upp úr hjá Sóldísi er endurmörkun Feyenoord, eins stærsta knattspyrnufélags Hollands. Félagið á sterkar rætur í Rotterdam og er órjúfanlegur hluti af menningu borgarinnar, með stóran og ástríðufullan stuðningsmannahóp.

„Undanfarin ár höfum við unnið mikið fyrir alþjóðlega kúnna og því var skemmtileg tilbreyting að fá að vinna að verkefni sem yrði svona sýnilegt í nærumhverfinu,“ segir Sóldís. Verkefnið hafði líka sérstaka þýðingu fyrir Sóldísi persónulega. „Ég kem úr mikilli fótboltafjölskyldu, sem gerði verkefnið auðvitað enn skemmtilegra fyrir mig.“

Studio Dumbar fékk leturhönnuðinn Jacob Wise með í verkefnið og sérhannaði hann letur fyrir félagið sem varð eitt helsta einkenni nýja útlitsins. Sóldís segir það hafa verið sérstaklega ánægjulegt að sjá letrið rata alla leið á búninga leikmannanna. „Það var ákveðið stolt í því að sjá það enda þar, enda búningurinn eitt sýnilegasta tákn félagsins.“

Íslenska senan sterk en sú hollenska plássmeiri

Eftir fimm ár í Hollandi hefur Sóldís fengið gott sjónarhorn á muninn á íslensku og hollensku hönnunarumhverfi. Á Íslandi segir hún samheldnina innan fagsins sérstaklega sterka. „Það er haldið vel utan um viðburði og skapað rými fyrir fólk úr senunni til að koma saman. Þrátt fyrir að senan sé lítil finnst mér mikill metnaður í að halda henni á lífi,“ segir Sóldís. Smæð samfélagsins hafi einnig ákveðna kosti.

„Það er auðveldara að kynnast fólki og mynda tengsl innan fagsins. Námið mitt í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands var einnig mikilvægur grunnur og mér finnst grafíska hönnunardeildin í LHÍ undirbúa nemendur vel fyrir vinnumarkaðinn. Námið er með góða blöndu af skapandi og hagnýtum verkefnum.“ Það varð sérstaklega augljóst fyrir henni þegar hún fór í skiptinám til Belgíu þar sem námið var mun listrænna.

Hollenska hönnunarsenan sé aftur á móti miklu stærri og þar sé meira rými fyrir ólíkar nálganir og tilraunastarfsemi. Margar stofur þar hafa hver og ein náð að rækta sinn stíl. Það sem Sóldís tekur sérstaklega eftir er sjálfstraustið sem einkennir hollenska grafíska hönnun. „Fólk er óhrætt við að prófa sig áfram, hvort sem það er með nýja tækni eða hugmyndir, ýta hlutunum lengra og ögra því sem þykir hefðbundið,“ segir hún. Þar telur hún að íslenskir hönnuðir gætu mögulega sótt sér innblástur.

„Það er kannski eitthvað sem við á Íslandi gætum tekið meira til okkar, að vera aðeins óhræddari við að taka pláss og treysta eigin hugmyndum.“

Alþjóðlegi hönnunarheimurinn kemur til Íslands

Þann 1.-2. októberverður alþjóðlega hönnunarráðstefnan AGI Open haldin hér í Reykjavík og stór hópur hönnuða allsstaðar að úr heiminum kemur saman á Íslandi. Sóldís segir það bæði stórt tækifæri fyrir íslenska hönnunarsenu og spennandi að sjá athyglina beinast hingað heim.

„Við erum lítið samfélag og fáum ekki endilega oft tækifæri til að sjá og heyra í svona mörgum hönnuðum alls staðar að úr heiminum á einum stað. Á sama tíma er líka gaman að athyglin snúist aðeins við og alþjóðlegi hönnunarheimurinn fái að kynnast því sem er að gerast á Íslandi,“ segir Sóldís. 

Ef hún væri sjálf nýútskrifuð úr Listaháskólanum í dag myndi hún nýta þessa tvo daga vel. „Ég myndi klárlega nýta mér alla flottu fyrirlestrana frá hönnuðum alls staðar að úr heiminum.“

Hún hvetur sérstaklega nemendur og unga hönnuði til að mæta, bæði til að fá innblástur og til að kynnast fólki úr faginu. En kannski ekki síður til að sjá hversu margar leiðir eru í boði. „Ef ég hugsa til baka til þess þegar ég var sjálf nýútskrifuð hefði mér fundist mjög dýrmætt að sjá hversu margar ólíkar leiðir er hægt að fara innan grafískrar hönnunar. Það getur verið svolítið yfirþyrmandi að útskrifast og vita ekki alveg hvað tekur við, þannig að svona viðburður getur vonandi opnað augun fyrir því hvað er í boði og hvað er hægt að gera með námið.“

–

Framúrskarandi án þess að setja sig á háan stall

Aðspurð hvaða hönnuður sé í uppáhaldi hjá henni svarar hún um hæl; hönnuðurinn Rejane Dal Bello. Hún er ein þeirra sem Sóldís lítur sérstaklega upp til. Sóldís hefur sjálf fengið tækifæri til að vinna með Dal Bello og segir eitt það eftirminnilegasta við hana vera hvernig hún kemur fram við fólk.

„Hún er ekki bara eldklár og ótrúlega hæfileikaríkur hönnuður, heldur er hún líka með svo gott og jákvætt viðhorf. Hún kemur fram við alla sem jafningja, sama hversu mikla reynslu þeir hafa,“ segir Sóldís.

Sóldís hefur jafnframt lært mikið af vinnubrögðum hennar. Dal Bello sé óhrædd við að sýna mannlegu hliðina á sér, sé skemmtileg og fyndin og taki sig ekki of alvarlega. Hún hafi kennt sér að maður getur verið framúrskarandi hönnuður án þess að setja sig á einhvern háan stall.

„Það er eiginleiki sem ég kann mjög vel að meta. Svo er hún líka hraðasti hönnuður sem ég hef kynnst.“

Nýr og fallegur kafli framundan

Sóldís segist sjálf ekki vera mikið fyrir að kortleggja næstu ár fyrirfram. Henni líði enn vel í Rotterdam og sér ekki fyrir sér að flytja þaðan á næstunni. „Ég reyni að plana ekki of langt fram í tímann og leyfi hlutunum svolítið að gerast. Ég treysti því bara að hlutirnir fari eins og þeir eiga að fara. Þótt ég fái auðvitað stundum smá heimþrá. En á sama tíma veit maður aldrei.“

Stór breyting er þó fram undan því Sóldís á von á sínu fyrsta barni.

„Ætli næsta áskorunin verði ekki að finna jafnvægið á milli vinnunnar og móðurhlutverksins og alls sem því fylgir. Það verður allavega alveg nýr kafli fyrir mér.“

Tengt efni

  • Christian Bason er danskur stjórnmálafræðingur og hönnunarhugsuður (Ph.D.) sem er þekktur fyrir frumkvöðlastarf í nýsköpun og hönnun innan opinbera geirans.

    MasterClass með Christian Bason: Endurhugsum hvernig við sköpum verðmæti

  • Hönnunarsjóður: Opinn kynningarfundur um gerð umsókna

  • Siggi Odds og Or Type hljóta Graphite Pencil á D&AD verðlaununum

Dagsetning
7. september 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
  • Greinar
  • Hönnuður í fókus
  • AGI Open
  • Viðtal

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200