Hönnunarsjóður: Opinn kynningarfundur um gerð umsókna

Ertu að undirbúa umsókn í Hönnunarsjóð? Miðstöð hönnunar og arkitektúrs býður umsækjendum á opinn kynningarfund þar sem farið verður yfir helstu atriði sem gott er að hafa í huga við gerð umsóknar.
Fundurinn fer fram í fjarfundi þriðjudaginn 8. september kl. 12:00–12:45 og er opinn öllum sem hyggjast sækja um styrk úr Hönnunarsjóði.
Á fundinum verður farið yfir umsóknarferlið og umsóknareyðublaðið, með sérstakri áherslu á textagerð og framsetningu verkefnis, kostnaðaráætlun, fjármögnun og fylgigögn. Markmiðið er að auðvelda umsækjendum að undirbúa skýra og vandaða umsókn og svara þeim spurningum sem kunna að vakna við umsóknargerðina.
Sýniseintak af umsóknarformi fyrir almenna styrki er aðgengilegt hér og fyrir ferðastyrki hér.
Skráning á kynningarfund
Vinsamlega skráið þátttöku hér.
Gagnlegar upplýsingar
Heimasíða Hönnunarsjóðs
Leiðbeiningar – almennir styrkir
Leiðbeiningar – ferðastyrkir
Um Hönnunarsjóð
Nánari upplýsingar
Ef spurningar vakna varðandi umsóknarferlið má senda fyrirspurn á sjodur@honnunarmidstod.is.


