Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

MasterClass með Christian Bason: Endurhugsum hvernig við sköpum verðmæti

25. ágúst 2026
Christian Bason er danskur stjórnmálafræðingur og hönnunarhugsuður (Ph.D.) sem er þekktur fyrir frumkvöðlastarf í nýsköpun og hönnun innan opinbera geirans.
Christian Bason er danskur stjórnmálafræðingur og hönnunarhugsuður (Ph.D.) sem er þekktur fyrir frumkvöðlastarf í nýsköpun og hönnun innan opinbera geirans.

Miðvikudaginn 16. september býður MH&A upp á MasterClass með Christian Bason í Grósku fyrir stjórnendur og fagfólk í skapandi greinum. Á námskeiðinu, sem byggir á aðferðarfræði bókar Christian, Expand, býður Christian stjórnendum og fagfólki í skapandi greinum, arkitektum, hönnuðum og öðrum sem vinna að breytingum, að ögra eigin hugmyndum og forsendum um hvernig og hvers vegna þau skapa verðmæti.

Námskeiðinu er skipt í þrjá hluta.

1. hluti – Innblástur og leiðir til að auka áhrif
Christian kynnir aðferðafræðina og sýnir raunveruleg dæmi úr hönnunar- og arkitektastofum í Danmörku og víðar um heim.
- 45 mínútur

2. hluti – Verkleg vinna með „Expand“ aðferðafræðinni
Þátttakendur vinna gagnvirkt með Expand aðferðafræðina og endurhugsa raunverulegt verkefni úr eigin starfsumhverfi. Markmiðið er að opna fyrir nýjar hugmyndir, möguleika og leiðir til aukinna áhrifa.
- 45 mínútur

3. hluti – Samtal og ráðgjöf með Christian
Þátttakendur deila niðurstöðum vinnunnar og fá endurgjöf og ráðgjöf frá Christian.
- 30 mínútur

Fyrir hverja: Stjórnendur og fagfólk í skapandi greinum. 
Hvenær:
Miðvikudaginn 16. september milli 13:00-15:30.
Kostnaður:
30.000 kr - snemmskráning til 2. september. Almennt verð 45.000 kr. Lokað verður fyrir skráningu mánudaginn 11. september. 

Skráning

Christian Bason er danskur stjórnmálafræðingur og hönnunarhugsuður (Ph.D.) sem er þekktur fyrir frumkvöðlastarf í nýsköpun og hönnun innan opinbera geirans

Christian Bason er danskur stjórnmálafræðingur og hönnunarhugsuður (Ph.D.) sem er þekktur fyrir frumkvöðlastarf í nýsköpun og hönnun innan opinbera geirans, fyrst sem stjórnandi MindLab og síðar forstjóri Danish Design Center. Í dag er Bason meðstofnandi Transition Collective sem vinnur að því að hraða samfélagslegum umbreytingum. Christian hefur um árabil starfað á alþjóðavettvangi við hönnun, nýsköpun, leiðtogastarf og umbreytingar í samfélaginu. Hann er þekktur fyrirlesari og hefur leitt fjölda vinnustofa um sjálfbærar umbreytingar, leiðtogahæfni og opinbera nýsköpun. Hann er höfundur og meðhöfundur fjölmargra bóka, þar á meðal Expand: Stretching the Future by Design og Leading Public Sector Innovation: Co-creating for a Better Society. Hann er með doktorsgráðu frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn og meistaragráðu í stjórnmálafræði frá Háskólanum í Árósum.

Expanding the Future

Christian Bason

Tengt efni

  • Vasinn í öllum sínum birtingarmyndum á nýrri samsýningu HAKK Gallery

  • Hönnuður í fókus: Hulda Jónsdóttir

  • Heimsþekktir hönnuðir mæta til Reykjavíkur á AGI Open

Dagsetning
25. ágúst 2026
Höfundur
Gerður Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Námskeið
  • Fagfélög

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200