Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

HönnunarMars marserar inn í nýja og spennandi tíma

18. september 2026

Það styttist óðfluga í að við drögum fram lúðrana og marserum af stað á ný. HönnunarMars snýr aftur 7.-11. apríl 2027. Undirbúningurinn er kominn á fullt skrið og hugmyndirnar flæða. Það er sköpunargleði í loftinu. Framundan eru spennandi breytingar og nýjar áherslur. 

HönnunarMars er lifandi og litrík uppskeruhátíð hönnunar og arkitektúrs þar sem framsækin hönnun og nýjungar leiða saman sýnendur og gesti. Í nokkra daga á hverju ári tekur hátíðin yfir borgina þar sem hönnun teygir sig inn í sýningarrými, verslanir, vinnustofur og óvænta staði. Á hátíðinni birtist heill heimur hugmynda, ólíkra sjónarmiða og þekkingar. 

HönnunarMars er ein af stóru borgarhátíðum Reykjavíkur sem býður upp á fjölbreytilega dagskrá fyrir þá sem hafa gaman af hugmyndum, sköpun og vilja sjá hlutina frá nýju sjónarhorni. Gestir og gangandi rölta á milli staða, fá innblástur og enda jafnvel á óvæntum stöðum. 

HönnunarMars hefur verið órjúfanlegur hluti af dagatali hönnuða, arkitekta og allra borgarbúa undanfarin 18 ár. HönnunarMars, ásamt lóunni, er vorboðinn ljúfi, innblástur, gleði og stemning, hátíð sem við bíðum eftir og elskum að hittast, upplifa og fagna.

–

HönnunarMars heitir HönnunarMars 

HönnunarMars var haldinn í mars fyrstu 11 árin. Í heimsfaraldri varð að færa hátíðina nær sumri, sem allir reyndust svo ánægðir með. HönnunarMars hefur fest sig í sessi sem ein af megin hátíðum borgarinnar. Nafnið er vel þekkt og á sér djúpar rætur í fagheimi hönnunar. Nafnið hafði frá upphafi tvíþætta merkingu, tengda mánuðinum en ekki síður því að marsera á milli staða, blása í lúðra og vekja athygli á því sem íslensk hönnun og arkitektúr hefur fram að færa. Eftir yfirlegu eru allir sammála um að nafni hátíðarinnar verður ekki breytt. Þvert á móti munum við Marsera sem aldrei fyrr. 

HönnunarMars, DesignMarch á ensku er hönnunarhátíð allra Íslendinga, en það er mikilvægt að staðsetja hana með skýrum hætti á hinu alþjóðlega korti og í takti við aðrar alþjóðlegar hönnunarhátíðir og þess vegna verður Reykjavík Design Festival hluti af nafninu.

HönnunarMars er hönnunarhátíð allra Íslendinga en um leið hefur hátíðin mikilvægu hlutverki að gegna á alþjóðlegum vettvangi. Til að styrkja þá stöðu og staðsetja hátíðina skýrar í samhengi við aðrar alþjóðlegar hönnunarhátíðir verður Reykjavík Design Festival hluti af heiti hátíðarinnar DesignMarch á ensku.

Alltaf í apríl!

HönnunarMars hefur líka fundið sinn fasta stað í dagatalinu. Hátíðin verður framvegis haldin í apríl og dagsetningar næstu fimm ára eru þegar staðfestar. 

7.–11. apríl 2027
26.–30. apríl 2028
11.–15. apríl 2029
3.–7. apríl 2030
23.–27. apríl 2031

Í apríl ár hvert verður því blásið til hátíðar og hönnun og arkitektúr í öndvegi um alla borg, enda hátíðin vettvangur nýrra hugmynda, óvæntra tenginga, samtals og sköpunar, en nú á öruggum stað í dagatalinu undir föstum takti marsins. 

Reimið á ykkur skóna og farið að hita upp því snemmskráning fyrir HönnunarMars verður kynnt á næstu dögum. Þá blásum við formlega til leiks!

Tengt efni

  • „Við eigum fullt erindi í þetta samtal“

  • Við vitum hver greiddi fyrir flísalímið. En hver hannaði húsið?

  • Fjallað var um framtíðina og stórar breytingar á vel heppnuðum fyrsta fyrirlestri vetrarins

Dagsetning
18. september 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • HönnunarMars
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
  • Greinar

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200