Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Fjallað var um framtíðina og stórar breytingar á vel heppnuðum fyrsta fyrirlestri vetrarins

17. september 2026

Fyrsti fyrirlestur vetrarins í fyrirlestraröðinni Tölum um hönnun og arkitektúr fór fram við góðar undirtektir í Grósku þar sem margt var um manninn. Þar var horft til framtíðar og rætt um þær stóru breytingar sem eru framundan og ekki síður hvernig við getum sjálf tekið þátt í að móta það sem tekur við. Það var ánægjulegt að sjá hversu margir mættu til að hefja daginn á samtali um framtíðina.

Christian Bason, stjórnmálafræðingur, rithöfundur og frumkvöðull á sviði nýsköpunar og hönnunar flutti erindi og lagði út frá bókinni Expand þar sem skapandi hugsun og aðferðir hönnunar eru settar fram sem grundvallarþáttur í að nálgast verkefni og leita nýrra lausna. Bergur Ebbi Benediktsson, framtíðarfræðingur og rithöfundur, sem er nýbúinn að gefa út bókina Öld ímyndunaraflsins, varpaði ljósi á þann myndheim sem hefur verið skapaður til að lýsa mögulegri framtíð okkar. Þeir fjölluðu um breytingarnar sem við erum að upplifa, og getum vænst á næstu árum, frá ólíku sjónarhorni og vöktu gesti til umhugsunar um að mögulega getum við gert meira en bara að bregðast við framtíðinni heldur tekið þátt í að móta hana.

Eftir erindin tóku Selma Rut Þorsteinsdóttir, yfirsköpunarstjóri hjá Pipar og formaður SÍA og Halldóra Vífilsdóttir, arkitekt og framkvæmdastjóri Nordic Office of Architecture, þátt í umræðum með þeim Christian og Bergi Ebba en Bergur Finnbogason, sköpunarstjóri hjá Fenris Creation, stýrði samtalinu.

Breytingar, tækifæri og áskoranir framtíðar er stórt og umfangsmikið umræðuefni og það sköpuðust líflegar og góðar umræður. Þessi morgunstund minnir okkur á það hversu mikilvægt og gefandi það er að skapa vettvang þar sem hægt er að stefna saman ólíkum einstaklingum með fjölbreytta þekkingu til að fjalla áhugaverð og mikilvæg málefni.

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs þakkar öllum þeim sem mættu og tóku þátt í frábærum morgni. Það er fátt betra en að byrja daginn á nýjum hugmyndum, góðu samtali og innblæstri. 

Tengt efni

  • Christian Bason er danskur stjórnmálafræðingur og hönnunarhugsuður (Ph.D.) sem er þekktur fyrir frumkvöðlastarf í nýsköpun og hönnun innan opinbera geirans.

    MasterClass með Christian Bason: Endurhugsum hvernig við sköpum verðmæti

  • Erum við að móta framtíðina eða bara að elta hana?

  • Stóra breytingin! Horft til framtíðar á fyrsta fyrirlestri vetrarins

Dagsetning
17. september 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Tölum um
  • Fyrirlestur
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200