Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Nýr stjórnandi HönnunarMars er Þura Stína Kristleifsdóttir

21. september 2026

Þura Stína Kristleifsdóttir hefur tekið við starfi stjórnanda HönnunarMars. 

Hún mun leiða framkvæmd HönnunarMars í samstarfi við Klöru Rún Ragnarsdóttur, dagskrárstjóra hátíðarinnar og teymi Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs. Þura Stína mun einnig taka þátt í fjölbreytilegum verkefnum MH&A á Íslandi og erlendis.

Þura Stína er grafískur hönnuður, framleiðandi og listrænn stjórnandi. Hún lauk BA-gráðu í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands og MA-gráðu í Visual Design and Integrated Marketing Communication frá NABA í Mílanó. Hún hefur starfað sjálfstætt við hönnun, leikstjórn, framleiðslu og listræna stjórnun frá 2016 og starfað sem grafískur hönnuður meðal annars hjá auglýsingastofunni Brandenburg og í markaðsteymi Nova. 

„Við erum mjög spennt að fá Þuru Stínu til að leiða HönnunarMars inn í nýja tíma og bætast við sem öflugur liðsmaður í teymi Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs. Hún hefur mikla og verðmæta reynslu sem hönnuður, framleiðandi og listrænn stjórnandi og hefur auk þess mjög góða þekkingu á hátíðinni sem framleiðandi DesignTalks til margra ára og þátttakandi. Það verður spennandi að taka þátt í þróun HönnunarMars undir stjórn Þuru Stínu sem tekur við góðu búi frá fyrri stjórnanda hátíðarinnar,“ segir Kristján Schram, stjórnarformaður HönnunarMars.

Þura Stína hefur unnið að HönnunarMars í ólíkum hlutverkum, meðal annars sem upplifunarhönnuður, verkefnastjóri og sýnandi. Hún hefur verið framleiðandi DesignTalks ráðstefnunnar í Hörpu frá árinu 2022. 

Síðast starfaði hún sem kynningar- og markaðsstjóri fyrir Listahátíð í Reykjavík þar sem hún bar ábyrgð á markaðs- og kynningarmálum.

„HönnunarMars er hátíð hönnuða og arkitekta en líka okkar allra. Hún er vettvangur þar sem við komum saman til að fagna íslenskri hönnun, deila þekkingu, takast á við nýjar hugmyndir og skapa ný tengsl. Það eru spennandi tækifæri fram undan og ég er mjög spennt að takast á við nýjar áskoranir og halda áfram að þróa hátíðina í samstarfi við samfélag íslenskra hönnuða og arkitekta og öflugt teymi Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs,“ segir Þura Stína, nýr stjórnandi HönnunarMars.

Tengt efni

  • Framúrskarandi fagfólk mótar DesignTalks 2027

  • HönnunarMars marserar inn í nýja og spennandi tíma

  • Fjallað var um framtíðina og stórar breytingar á vel heppnuðum fyrsta fyrirlestri vetrarins

Dagsetning
21. september 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • HönnunarMars
  • DesignTalks
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
  • Greinar

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200