Vitrum Iceland tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

Vitrum Iceland er verk eftir hönnuðinn Johönnu Seelemann sem spannar rannsóknir, tilraunir, hönnun, framleiðslu og sýningu. Johanna sameinar handverk og iðnað og skapar framúrskarandi lausnir, ferla og gripi úr endurunnu gleri. Verkin, hliðarborð, vegglampar, vasar, hillur og stóll, voru sýnd í H,A,K,K galleríi. Vitrum Iceland er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum verk.
Sköpunarferli verksins er sniðið að íslenskum aðstæðum, takmörkuðu efnisframboði og afkastagetu. Johanna nýtir íslenskt gler sem annars væri urðað, vinnur það með endurnýjanlegri orku og breytir því í endingargóða hluti sem halda efnishreinleika sínum og verða því áfram endurvinnanlegir.
Johanna byggir Vitrum Iceland á fyrri rannsóknarvinnu sinni, þar sem hún þróaði glerblásturstækni sem fangar loftbólur í stað þess að forðast þær. Ferlið má endurtaka en niðurstaðan er einstök í hvert sinn. Að mati dómnefndar eru hönnun og útfærsla Vitrum Iceland vandaðar og hagnýtar. Johanna teflir glerinu saman við önnur efni sem vísa í handverkið að baki og gegna um leið burðarhlutverki svo efniviður og virkni haldast í hendur. Verkið er heilsteypt og öll framsetning og sýningin eru órjúfanlegur hluti þess.
Vitrum Iceland er hugvitsamlegt og fagurfræðilega sterkt verk, frá fyrstu tilraunum til sýningar.
Johanna Seelemann stendur að baki verkinu sem hún vann fyrir H,A,K,K gallerí, í samstarfi við Anders Vange hjá Reykjavík Glass, Fjöl works og Hildiberg Lighting Studio. Efnið kom frá Íspan-Glerborg.






Verðlaunaafhending Hönnunarverðlauna Íslands 2026 fer fram í Grósku þann 5. nóvember næstkomandi ásamt samtali því tengdu. Taktu daginn frá!
Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt. Hönnunarverðlaun Íslands verða veitt í þrettánda sinn í ár og eru veitt í þremur flokkum: Vara // Staður // Verk. Auk þess verður veitt viðurkenning fyrir Bestu fjárfestinguna í hönnun og Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands.
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Íslands, með stuðningi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Íslandsstofu, Grósku, Vísindagörðum Háskóla Íslands og Bláa lóninu.


