Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

¡Hola! tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

21. október 2026

¡Hola! er herferð malbikunarfyrirtækisins Colas um ástand vega á Íslandi sem unnin var af auglýsingastofunni Pipar\TBWA. ¡Hola! herferðin er tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum verk.

¡Hola! herferðin byggir á Nicolas sem er sérstakur áhugamaður um holur á vegum og talar til stjórnvalda með húmor. Herferðin birtist í fjölbreytilegum miðlum, hefðbundnum fjölmiðlum og samfélagsmiðlum og í Ónýtuvegahandbókinni sem inniheldur lýsingu á ástandi vegakerfisins, ásamt tillögum að úrbótum og vegafréttaspá. Handbókinni fylgir að sjálfsögðu ýtarlegt holukort af Íslandi sem vegfarendur geta notað til að leggja lykkju á leið sína á ferð um landið.

Markmið malbikunarfyrirtækisins Colas á Íslandi var að vekja fólk og stjórnvöld til meðvitundar um bágborið ástand vegakerfisins á Íslandi. Herferðin náði markmiði sínu og náði til stjórnvalda og almennings en Ónýtuhandbókin var send til allra þingmanna og forsvarsfólks sveitarfélaga og í kjölfarið jukust fjárveitingar til viðhalds vega. Almenningur sjálfur tók einnig virkan þátt í verkefninu með því að tilkynna holur um allt land.

Með frumlegum orðaleik á milli spænsku og íslensku í meðförum hins létta og skemmtilega Nicolas er sköpuð kveikja fyrir heila herferð sem heldur þræði þvert á ólíka miðla. Herferðin er öll byggð á frumlegri hugmynd, frábærri hönnun og snjallri nálgun við miðlun skilaboða malbikunarfyrirtækis.

Herferðin byggir á því að þurrar staðreyndir um vegakerfið ná sjaldan eyrum stjórnvalda og þess vegna er spaugsöm og viðkunnanleg persóna notuð sem í þessu tilviki náði til fjölmiðla og fékk almenning með sér í lið.

Að mati dómnefndar liggur styrkur herferðarinnar í hugmyndinni sjálfri. Að gera holu að aðalpersónu er einföld og vel útfærð hugmynd og Nicolas er nógu heilsteyptur og geðþekkur karakter til að bera alla herferðina uppi. Efnið, allt frá samfélagsmiðlum til handbókarinnar, er framúrskarandi og sett fram á aðgengilegan hátt sem gerir annars þurrt tungumál um innviði skiljanlegt og skemmtilegt fyrir breiðan hóp.

¡Hola! er auglýsingaherferð sem notar hefðbundnar aðferðir en beitir þeim markvisst og af staðfestu. Mest um vert er að herferðin var virkilega árangursrík að því leyti að meira fjármagni var veitt í viðhald vega í kjölfar hennar.

–

Pipar\TBWA er margverðlaunuð auglýsingastofa á Íslandi sem er hluti af TBWA-auglýsingastofukeðjunni sem telur yfir 300 auglýsingastofur víðs vegar um heiminn. Stofan hefur unnið margar af stærstu herferðum hér innanlands síðustu árin og fyrir ¡Hola! hafa þau fengið tilnefningar og unnið til verðlauna á hátíðum líkt og Cannes Lion.

Verðlaunaafhending Hönnunarverðlauna Íslands 2026 fer fram í Grósku þann 5. nóvember næstkomandi ásamt samtali því tengdu. Taktu daginn frá!

Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt. Hönnunarverðlaun Íslands verða veitt í þrettánda sinn í ár og eru veitt í þremur flokkum: Vara // Staður // Verk. Auk þess verður veitt viðurkenning fyrir Bestu fjárfestinguna í hönnun og Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands.

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Íslands, með stuðningi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Íslandsstofu, Grósku, Vísindagörðum Háskóla Íslands og Bláa lóninu.

Tengt efni

  • Opið kall eftir sýningum í Norræna húsinu á HönnunarMars

  • Blásum í HönnunarMars lúðurinn! Opnað fyrir snemmskráningu 2027

  • HönnunarMars marserar inn í nýja og spennandi tíma

Dagsetning
21. október 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Hönnunarverðlaun Íslands
  • Greinar
  • Fagfélög

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200