Baugur Bjólfs tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

Baugur Bjólfs er hringlaga útsýnispallur á Bæjarbrún sem gnæfir 650 metra yfir Seyðisfirði með einstöku útsýni frá mynni fjarðarins og inn dalinn hannaður af Arkibygg og Esju arkitektum. Baugur Bjólfs er tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum staður.
Í einföldu formi hringsins renna frásögn, upplifun, aðgengi og burðarvirki saman í eina heild. Form Baugsins er táknrænt og tengist sögu Seyðisfjarðar en er einnig hluti af burðarvirki og tæknilegri hagkvæmni mannvirkisins.
Verkið skapar nýjan áfangastað í umhverfi Seyðisfjarðar sem gerir stórbrotið landslag fjarðarins aðgengilegt. Hringurinn er í senn gönguleið og útsýnispallur sem býður upp á samfellda þrepalausa leið með innbyggðum setsvæðum þar sem gestir geta gengið, staldrað við og upplifað síbreytilegt útsýni til allra átta án þess að einn staður eða leið sé fyrir fram ákveðin.
Hringform verksins sprettur ekki upp af sjálfu sér heldur úr staðnum sjálfum og sögunni af landnámsmanninum Bjólfi sem sagður er heygður í fjallinu. Baugurinn vísar til silfurhrings sem er ímyndaður hluti af haugfé Bjólfs. Baugurinn verður þannig látlaus tenging milli sögu staðarins og umhverfis, án þess þó að keppa við landslagið um athygli. Yfir pallinum gnæfa svo tindar Bjólfs sem styrkja tengsl mannvirkisins við umhverfið.
Einfalt formið skapar rýmið en er í senn burðarvirki. Lokaður hringurinn tryggir styrk og burðarþol, hann hvílir á afmörkuðum punktum og skagar út yfir fjallsbrúnina, á meðan samfellt form mannvirkisins sameinar gönguleið og setsvæði. Form verksins fylgir einnig landslaginu og gerir það aðgengilegt hjólastólum.
Það er mat dómnefndar að arkitektúrinn í verkinu sameini með framúrskarandi hætti fagurfræði, notagildi og verkfræði hönnunarinnar og að jafnframt styðji sömu þættir hver annan og vinni saman í einni heild. Efnisvalið, sýnileg steypa og ryðfrítt stál og lerki, myndar silfurgráan litaskala sem fellur vel inn í umhverfið, stenst krefjandi veðuraðstæður og þarf þar að auki lítið viðhald.
Baugur Bjólfs sameinar rými, upplifun og burðarvirki á nýstárlegan hátt þar sem hringformið sjálft veitir mannvirkinu styrk og gerir því kleift að skaga út yfir fjallsbrúnina. Arkitektúr þar sem fagurfræði, notagildi og verkfræði styðja hvert annað.
Verkið er hannað af Ástríði Birnu Árnadóttur og Stefaníu Helgu Pálmarsdóttur hjá Arkibygg og Auði Hreiðarsdóttur hjá Esja arkitektum í samstarfi við landslagsarkitektana Önnu Kristínu Guðmundsdóttur og Kjartan Mogensen og Arnar Björn Björnsson hjá exa nordic.






Verðlaunaafhending Hönnunarverðlauna Íslands 2026 fer fram í Grósku þann 5. nóvember næstkomandi ásamt samtali því tengdu. Taktu daginn frá!
Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt. Hönnunarverðlaun Íslands verða veitt í þrettánda sinn í ár og eru veitt í þremur flokkum: Vara // Staður // Verk. Auk þess verður veitt viðurkenning fyrir Bestu fjárfestinguna í hönnun og Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands.
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Íslands, með stuðningi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Íslandsstofu, Grósku, Vísindagörðum Háskóla Íslands og Bláa lóninu.


