Baugur Bjólfs hlýtur virt alþjóðleg hönnunarverðlaun Dezeen

Útsýnisstaðurinn Baugur Bjólfs við Seyðisfjörð vann Dezeen verðlaunin í flokknum Architecture: Small project of the year 2026. Veitt voru verðlaun fyrir framúrskarandi hönnun og arkitektúr í 49 flokkum en valið var úr yfir 4300 verkefnum frá 91 landi. Hönnunarteymið tók við verðlaununum við hátíðlega athöfn í Royal Ballet & Opera í London á mánudaginn 16. nóvember ásamt fulltrúa frá íslenska sendiráðinu.
Í dómnefnd voru meðal annars arkitektarnir Sir Norman Foster, Amanda Levete og Daniel Libeskind. Ásamt því að fá dómnefndarverðlaunin var Baugur Bjólfs einnig valinn besta verkefnið í flokknum í kosningu almennings.
Á myndinni "DezeenAwards1" eru frá vinstri til hægri: Auður Hreiðarsdóttir arkitekt frá Esju, Stefanía Helga Pálmarsdóttir byggingafræðingur frá Arkibygg, Anna Kristín Guðmundsdóttir landslagsarkitekt, Ásta Birna Árnadóttir arkitekt frá Arkibygg og Arnar Björn Björnsson burðarþolsverkfræðingur frá exa nordic. Á myndinni "DezeenAwards2" eru frá vinstri til hægri: Stefanía, Auður, Arnar og Ragnhildur Arnórsdóttir frá íslenska sendirráðinu í London.
Baugur Bjólfs er hringlaga útsýnispallur staðsettur í 650m hæð yfir sjávarmáli við Seyðisfjörð. Í Landnámu segir frá Bjólfi sem fyrstur nam land við Seyðisfjörð. Fjallið er nefnt eftir honum, og er talið að hann hafi verið heygður í fjallinu ásamt öllu sínu silfri og skarti. Haugur hans hefur enn ekki fundist, en með leikandi innblæstri í söguna látum við honum eftir silfurbaug mikinn. Hringlaga útsýnispallurinn svífur út yfir fjallsbrúnina og þaðan er útsýni út á Atlantshafið og til allra átta. Baugurinn fullkominn hringur, 32m í þvermál og er aðgengilegur öllum.
Verkefnið er unnið fyrir sveitarfélagið Múlaþing og framkvæmdum við Bauginn lauk haustið 2025.
Hér eru vinningstilkynningarnar á síðu Dezeen:
https://www.dezeen.com/awards/2026/winners/ring-of-bjolfur/
Hér er grein sem Dezeen skrifaði um verkefnið í síðustu viku:
https://www.dezeen.com/2026/11/10/ring-bjolfur-arkibygg-architects-esja/






