Konungur Svíþjóðar veitir eigendum Basalt arkitekta heiðursorðu Eugens

Sigríður Sigþórsdóttir, Hrólfur Karl Cela, Marcos Zotes og Perla Dís Kristinsdóttir, arkitektar og eigendur Basalt arkitekta hlutu í gær, 17. nóvember, heiðursorðu Eugens prins árið 2026 fyrir framúrskarandi framlag á sviði lista. Karl XVI Gústaf Svíakonungur afhenti þeim orðuna við hátíðlega athöfn í konungshöllinni í Stokkhólmi.
Sigríður stofnaði Basalt arkitekta árið 2009 og leiðir stofuna í dag ásamt Hrólfi, Marcosi og Perlu. Stofan er einna þekktust fyrir framlag sitt til íslenskrar baðmenningar með hönnun lóna, sundlauga og baðstaða víða um land en stofan hefur einnig komið að hönnun annarra verkefna eins og hótela, íbúðarhúsnæðis, skólahúsnæðis, heilbrigðisbygginga og almenningsrýma. Árið 2018 hlutu þau Hönnunarverðlaun Íslands fyrir arkitektúr í íslenskri baðmenningu. Marcos, Perla og Hrólfur verða fulltrúar Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr 2027 ásamt hönnuðunum Kristínu Evu Ólafsdóttur og Nils Wiberg frá Gagarín og Rán Flygenring, listamanni með sýninguna Samfélag í bleyti.
Basalt arkitektar vinna út frá sérkennum hvers staðar og leggja áherslu á samspil bygginga, náttúru og mannlífs. Verk stofunnar eru afrakstur sameiginlegrar vinnu starfsfólks hennar og líta eigendurnir á orðuveitinguna sem viðurkenningu á framlagi alls hópsins.
Um heiðursorðu Eugens prins
Gústaf V Svíakonungur stofnaði til viðurkenningarinnar árið 1945 í tilefni af áttræðisafmæli Eugens prins, sem var landslagsmálari og listsafnari. Orðan er veitt árlega til fimm norræna aðila, þar af þriggja sænskra. Meðal handhafa eru arkitektar, myndlistarmenn, ljósmyndarar og hönnuðir. Í ár eru eigendur Basalt arkitekta tilgreindir sem viðtakendur frá Íslandi.
Meðal fyrri íslenskra handhafa eru Jóhannes S. Kjarval, Erró, Rúrí, Sigurður Guðmundsson, Hrafnhildur Arnardóttir, Ragnar Kjartansson og arkitektarnir Margrét Harðardóttir og Pálmar Kristmundsson. Meðal norrænna arkitekta sem hafa hlotið orðuna eru Alvar Aalto, Arne Jacobsen, Jørn Utzon, Sverre Fehn, Sigurd Lewerentz, Jan Gehl, Johan Celsing og Dorte Mandrup.






