Hjartanlega til hamingju verðlaunahafar Hönnunarverðlauna Íslands 2026!

Það var sannkölluð hönnunarhátíð í Grósku fimmtudaginn 5. nóvember þegar Hönnunarverðlaun Íslands voru afhent í þrettánda sinn. Þar var framúrskarandi hönnun og arkitektúr fagnað, fólkið á bak við verkin heiðrað og notið góðrar stundar saman. Við þökkum öllum sem tóku þátt í að gera daginn jafn eftirminnilegan og raun bar vitni!
Dagurinn var tileinkaður sköpunarkraftinum í allri sinni fjölbreytni. Gestir fengu innsýn í þau níu verkefni sem tilnefnd voru til verðlaunanna í ár áður en komið var að sjálfri verðlaunaafhendingunni. Þar var fagnað með lófataki, gleði og góðri stemningu og að athöfn lokinni tók við skál og spjall.
Tvær myndaseríur má finna hér að neðan.









Vara ársins er Leiftur, Staður ársins er Frakkastígur 1 og Verk ársins er Sketching Bathing in Iceland. Þá hlaut Eyjólfur Pálsson heiðursverðlaun fyrir framlag sitt til íslenskrar hönnunar og Aurora velgerðarsjóður hlaut viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun fyrir verkefnið Sweet Salone.
Við óskum öllum verðlaunahöfum og tilnefndum innilega til hamingju og þökkum einnig öllum sem komu kærlega fyrir frábæran dag!
Takk fyrir að fagna framúrskarandi íslenskri hönnun og arkitektúr með okkur!

























