Leiftur er Vara ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2026
Leiftur hlýtur Hönnunarverðlaun Íslands 2026 í flokknum Vara fyrir hönnun sem sameinar tæknilega yfirburði, auðþekkjanlegt form og áþreifanleg samfélagsleg áhrif. Í Leiftri snýr hönnunin ekki einvörðungu að formi og virkni bátsins heldur skapar hún lausn sem hefur breytt möguleikanum á því að vinna við erfiðar aðstæður á sjó. Leiftur sýnir með afgerandi hætti hvernig íslensk hönnun getur náð árangri á alþjóðavettvangi og um leið átt þátt í að bjarga mannslífum.
Leiftur er björgunarbátur hannaður af Páli Einarssyni fyrir Rafnar. Báturinn er hluti af sístækkandi vörulínu björgunarbáta Rafnar sem eru í notkun víða um heim. Í Leiftri mætast tæknileg nýsköpun, íslensk bátahefð og reynsla íslenskra sjómanna og björgunarsveita í hraðskreiðum báti fyrir krefjandi aðstæður.
Skrokkurinn er hannaður út frá samspili báts og sjávar, með það að markmiði að draga úr höggum, auka stöðugleika og stjórnhæfni og minnka þannig álag á fólk og búnað í hraðsiglingu.
Frá því að Leiftur var fyrst kynntur hefur báturinn verið þróaður í 13 ólíkum útfærslum, verið framleiddur í sjö löndum og verið mest seldi bátur Rafnar í meira en áratug. En áhrif hönnunarinnar ná lengra en það. Leiftur hefur gert björgunarsveitum kleift að sinna störfum sínum við erfiðustu skilyrði og átt þátt í að bjarga mannslífum. Þegar allir aðrir halda í land vegna veðurs fer Leiftur út.
Hönnun Leifturs sprettur úr íslenskri bátahefð og nánu samstarfi Rafnar við Landhelgisgæsluna, verkfræðinga, iðnaðarmenn og reynda sjómenn. Þar mætast hugvit, tækniþekking og reynsla, og staðbundin verkþekking er nýtt í þágu nútíma framleiðslu og krefjandi notkunar.
Það er mat dómnefndar að tæknileg virkni og form myndi eina heild í Leiftri en línur bátsins endurspegla bæði hvernig hann mætir sjónum og arfleifð íslenskra báta. Formið er svo einkennandi að báturinn er auðþekkjanlegur og hefur það mótað heildarásýnd Rafnar.
Leiftur sýnir hvernig framúrskarandi hönnun getur haft áhrif langt út fyrir sjálfa sig: á öryggi, vinnuaðstæður og tæknilega þróun. Verkefnið sameinar íslenska verkþekkingu, bátahefð og nýsköpun sem hefur sannað gildi sitt í raunverulegum aðstæðum og náð út fyrir landsteinana.
Páll Einarsson hefur verið aðalhönnuður Rafnar í rúm 15 ár og leitt þar hönnun og nýsköpun. Rafnar var stofnað af frumkvöðlinum Össuri Kristinssyni sem nýtti áratuga reynslu af hönnun og nýsköpun til að takast á við grundvallaráskoranir í siglingum.
Hönnunarverðlaun Íslands voru veitt við hátíðlega athöfn í Grósku fimmtudaginn 5. nóvember og er þetta í þrettánda sinn sem verðlaunin eru veitt. Það var Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins, sem veitti verðlaunin.
Hönnunarverðlaun Íslands eru veitt hönnuði, arkitekt, hönnunarteymi eða stofu fyrir framúrskarandi nýleg verkefni. Við val á verðlaunahöfum er leitað að verkefnum sem skara fram úr og geta staðið sem fulltrúar þess besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs. Verkefnin endurspegla gæði og vera áhrifarík, fela í sér frjóa hugsun, snjalla lausn, vandaða útfærslu, áherslu á fagurfræði og fagmennsku í vinnubrögðum. Einnig er horft til hvort verkefnin séu notendavæn, nýskapandi og hafi jákvæð áhrif á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni.
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Íslands, með stuðningi frá Íslandsstofu, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Grósku, Vísindagörðum Háskóla Íslands og Bláa Lóninu.






