Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Sketching Bathing in Iceland er Verk ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands

5. nóvember 2026

Sketching Bathing in Iceland hlýtur Hönnunarverðlaun Íslands 2026 í flokknum Verk fyrir heildstætt verk sem kafar ofan í sögu og menningu íslenskrar baðhefðar. Verkið endurspeglar djúpan skilning á sundlauginni sem félagslegu rými í daglegu lífi Íslendinga og sem óformlegum samastað fyrir spjall, slúður og tengsl þvert á kynslóðir og gerir þá menningu um leið skiljanlega fyrir þá sem ekki þekkja hana. Hér er á ferðinni einstök teiknuð vettvangsferð sem gefur heillandi innsýn í sérkenni, húmor og sjálfsmynd þjóðarinnar.

Sketching Bathing in Iceland er verk sem fjallar um sundlaugarmenningu Íslendinga eftir Rán Flygenring. Verkið var gefið út í samnefndri bók og birtist í sýningu og baðteiknismiðjum í þremur sundlaugum í Reykjavík.

Sketching Bathing in Iceland fangar sundlaugarmenningu Íslendinga einstaklega vel með húmor og léttleika. Verkið hreyfir við fólki í hráum einfaldleika sínum og er upplýsandi fyrir þá sem ekki þekkja til sundlaugamenningar Íslands sem hlaut nýlega viðurkenningu UNESCO fyrir óáþreifanlegan menningararf mannkyns.

Í bókinni skrásetur Rán á aðgengilegan og skemmtilegan hátt sérstöðu og fjölbreytileika íslenskrar sundlaugarmenningar fyrir Íslendinga en ekki síður fyrir erlenda gesti. Verkið endurspeglar djúpan skilning á sundlauginni sem félagslegu rými í daglegu lífi Íslendinga, sem óformlegum samastað fyrir spjall, slúður og tengsl þvert á kynslóðir og ólíka þjóðfélagshópa með mismunandi uppruna og gerir þá menningu um leið aðgengilega og skiljanlega fyrir þá sem þekkja hana ekki.

Að mati dómnefndar sýnir Rán persónulega og húmoríska nálgun í teiknaðri skráningu á vettvangi í sundlaugum Íslendinga og notar þá nálgun sem leið til menningarmiðlunar sem opnar á frekara samtal og fleiri frásagnir. Rán er í senn þátttakandi og rannsakandi miðlari og handbragðið endurspeglar það. Verkið samanstendur af stemningsmyndum sem fanga vatn og andrúmsloft af næmni, með samræmdri fagurfræði, frá teikningu til sýningar og bókar.

Sketching Bathing in Iceland er framúrskarandi heildstætt verk sem skrásetur baðmenningu Íslands og miðlar henni með einstöku innsæi, næmni og húmor.

–

Rán Flygenring er margverðlaunaður íslenskur teiknari, myndhöfundur, hönnuður og rithöfundur. Hún er þekkt fyrir sérstakan, fjörugan og óhefðbundinn myndstíl og verk þar sem náttúran, umhverfið og frásagnargleðin skipa stóran sess. Hún er þar að auki hluti af teyminu sem tekur þátt í Feneyjatvíæringnum í arkitektúr árið 2027 með verkefni þar sem baðmenning Íslendinga er umfjöllunarefnið. Hönnun bókarinnar, Sketching Bathing in Iceland var í höndum Studio Studio, Arnars Freys Guðmundssonar og Birnu Geirfinnsdóttur.

Hönnunarverðlaun Íslands voru veitt við hátíðlega athöfn í Grósku fimmtudaginn 5. nóvember og er þetta í þrettánda sinn sem verðlaunin eru veitt. Það var Sigríður Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands, sem veitti verðlaunin. 

Hönnunarverðlaun Íslands eru veitt hönnuði, arkitekt, hönnunarteymi eða stofu fyrir framúrskarandi nýleg verkefni. Við val á verðlaunahöfum er leitað að verkefnum sem skara fram úr og geta staðið sem fulltrúar þess besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs. Verkefnin endurspegla gæði og vera áhrifarík, fela í sér frjóa hugsun, snjalla lausn, vandaða útfærslu, áherslu á fagurfræði og fagmennsku í vinnubrögðum. Einnig er horft til hvort verkefnin séu notendavæn, nýskapandi og hafi jákvæð áhrif á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni.    

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Íslands, með stuðningi frá Íslandsstofu, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Grósku, Vísindagörðum Háskóla Íslands og Bláa Lóninu. 

Tengt efni

  • Sweet Salone hlýtur viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun 2026

  • Frakkastígur 1 er Staður ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2026

  • Leiftur er Vara ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2026

Dagsetning
5. nóvember 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Hönnunarverðlaun Íslands
  • Greinar
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200