Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Frakkastígur 1 er Staður ársins á Hönnunarverðlaunum Íslands 2026

5. nóvember 2026

Frakkastígur 1 hlýtur Hönnunarverðlaun Íslands 2026 í flokknum Staður fyrir að sýna á framsækinn hátt hvernig hringrásarhugsun getur verið raunhæfur hluti af hefðbundnu byggingarferli. Með einstökum arkitektúr og hönnunarhugsun sýnir verkefnið hvernig takmarkanir í efnisvali geta ýtt undir skapandi drifkraft sem í tilfelli Frakkastígs 1 gefur byggingunni á endanum karakter en ekki síður fagurfræðilegt og menningarlegt gildi. 

Frakkastígur 1 er íbúðar- og atvinnuhúsnæði eftir s.ap arkitekta. Húsið er framúrskarandi tilraunaverkefni í hringrásarhönnun þar sem endurnýting byggingarefna, lífsferilsgreiningar og sveigjanleiki til framtíðar eru samþætt arkitektúrnum frá upphafi. Frakkastígur 1 er tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum staður.

Í hönnun Frakkastígs 1 er tekist á við eina stærstu áskorun byggingariðnaðarins: mikla efnisnotkun og kolefnislosun. Jafnframt er tekið mið af íslenskum aðstæðum sem gera miklar kröfur um veður- og burðarþol. Svar hönnunarinnar felst í því að snúa hönnunarferlinu við. Í stað þess að velja fyrst form og útvega síðan efni voru fyrirliggjandi efnisstraumar kortlagðir og hönnunin aðlöguð að þeim. Vegrið af þjóðvegum varð að útveggjaklæðningu, gler úr turninum við Smáratorg fékk nýtt hlutverk og steinar úr grunni hússins urðu að klæðningu á jarðhæð. Með því að nýta efni úr grunninum sjálfum er húsið að hluta til byggt úr staðnum sjálfum og góð dagsbirta, gróður og sameiginleg rými styrkja tengsl þess við bæði miðborgina og hafið.

Frakkastígur 1 sýnir í raunverulegu byggðu verki hvernig draga má verulega úr kolefnisspori mannvirkja innan ramma hefðbundins byggingarferlis og gildandi reglugerða, án aukins framkvæmdakostnaðar. Endurnýtt efni öðlast um leið nýtt gildi, bæði fagurfræðilegt og menningarlegt en færir húsinu ekki síður sögu og karakter auk þess að tengja það við staðinn og umhverfið. 

Það er mat dómnefndar að í verkinu verði hringrásarhugsunin sýnilegur hluti af arkitektúrnum sem skapar spennandi ásýnd og að ólík endurnýtt efni, báruð álklæðning og gróður myndi leikandi og marglaga yfirbragð og nýja fagurfræði. Einnig er eftirtektarvert hvernig innri hönnun hússins er hugsuð til langs tíma með léttum innveggjum og burðarkerfi sem auðveldar breytingar á rýmum eftir því sem þarfir íbúa breytast.

Frakkastígur 1 er bygging þar sem efnisvalið er órjúfanlegur hluti af arkitektúrnum sjálfum. Það gefur húsinu karakter og dýpt og skapar áhugaverða sjónræna upplifun, bæði í heildarmynd og í minni atriðum. Hönnunin einkennist af yfirvegun og nákvæmni, þar sem ekkert smáatriði er tilviljun.

–

Arnhildur Pálmadóttir hjá s. ap arkitektum hannaði húsið en stofan hefur verið í fremstu röð arkitekta á Íslandi síðastliðin misseri. Arnhildur og s.ap arkitektar áttu einnig Lavaforming verkefnið sem var valið sem sýning Íslands á Feneyjatvíæringinn í arkitektúr 2025. IÐA fasteigna- og þróunarfélag vann samkeppni Reykjavíkurborgar um grænar þróunarlóðir og Frakkastígur 1 var ein af þeim og vann verkið í samstarfi við s. ap. arkitekta og framkvæmdafélagið Arnarhvol.

Hönnunarverðlaun Íslands voru veitt við hátíðlega athöfn í Grósku fimmtudaginn 5. nóvember og er þetta í þrettánda sinn sem verðlaunin eru veitt. Það var Hermann Jónasson, forstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, sem veitti verðlaunin. 

Hönnunarverðlaun Íslands eru veitt hönnuði, arkitekt, hönnunarteymi eða stofu fyrir framúrskarandi nýleg verkefni. Við val á verðlaunahöfum er leitað að verkefnum sem skara fram úr og geta staðið sem fulltrúar þess besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs. Verkefnin endurspegla gæði og vera áhrifarík, fela í sér frjóa hugsun, snjalla lausn, vandaða útfærslu, áherslu á fagurfræði og fagmennsku í vinnubrögðum. Einnig er horft til hvort verkefnin séu notendavæn, nýskapandi og hafi jákvæð áhrif á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni.    

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Íslands, með stuðningi frá Íslandsstofu, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Grósku, Vísindagörðum Háskóla Íslands og Bláa Lóninu. 

Tengt efni

  • Tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

  • Mystic Garden tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

  • Vitrum Iceland tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

Dagsetning
5. nóvember 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Hönnunarverðlaun Íslands
  • Greinar
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200