Mystic Garden tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

Mystic Garden er safn glerlampa eftir Brynjar Sigurðarson og Veroniku Sedlmair hjá Studio Brynjar og Veronika. Safnið samanstendur af handblásnum glerhlutum þar sem tilraunir með efni, lit og ljós mæta frásögnum sem sækja í náttúru, rómantík og hið yfirnáttúrulega. Mystic Garden er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum vara.
Með verkum sem eru allt í senn Verkin eru í senn ljós, skúlptúrar og ímyndað landslag, og víkka þannig mörk hönnunar. Verkefnið er margslungið en í lykilhlutverki er handverkið og glerblásturinn sem tekur áratugi að ná tökum á. Hlutirnir virkja ímyndunaraflið og dýpka samband okkar við þá sem við umkringjum okkur með.
Hönnun og framkvæmd Mystic Garden byggja á áralangri rannsókn Brynjars og Veroniku á sambandi manns, hlutar og náttúru. Brynjar og Veronika reyna hér á tæknileg mörk handblásins glers og mótast rannsókn þeirra einnig af áhuga þeirra á tilfinningalegum og andlegum áhrifamætti lita.
Að baki verkinu liggur margra ára efnisrannsókn með glerblásurum glerrannsóknarmiðstöðinni CIRVA í Marseille þar sem reynt var á tæknileg mörk handblásins glers. Tvö lög af lituðu, bráðnu gleri eru mótuð og sameinuð í stór form, með litbrigðum og stigbreytingum sem umbreytast þegar ljósið fer í gegnum efnið. Framkvæmdin krefst djúps samtals og samstarfs hönnuða og handverksfólks. Ferlið stingur í stúf við framleiðsluhætti dagsins í dag þar sem allt á að taka sem stystan tíma. Verkefni sem þessi eru því eins konar uppreisn og andóf gegn hraða og skammsýni nútímans.
Það er mat dómnefndar að framúrskarandi hönnun og tæknileg áskorun glerblástursins er ekki markmið í sjálfu sér heldur forsenda þeirrar viðkvæmu nærveru og dulúðar sem einkennir heildina.
Mystic Garden er safn glerlampa eftir Brynjar Sigurðarson og Veroniku Sedlmair þar sem tilraunir með handblásið gler, lit og ljós mæta náttúru, rómantík og hinu yfirnáttúrulega. Afrakstur margra ára efnisrannsóknar eru skúlptúrísk verk þar sem einstakt handverk og næmt vald á lit, gagnsæi, formi og ljósi skapa hluti sem virðast nánast lifandi.
Studio Brynjar og Veronika er listrænt hönnunarsamstarf Brynjars Sigurðarsonar og Veroniku Sedlmair. Stúdíóið er staðsett í Þýskalandi en skilgreinir sig sem þýskt-íslenskt afl á sviði hönnunar og lista.






Verðlaunaafhending Hönnunarverðlauna Íslands 2026 fer fram í Grósku þann 5. nóvember næstkomandi ásamt samtali því tengdu. Taktu daginn frá!
Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt. Hönnunarverðlaun Íslands verða veitt í þrettánda sinn í ár og eru veitt í þremur flokkum: Vara // Staður // Verk. Auk þess verður veitt viðurkenning fyrir Bestu fjárfestinguna í hönnun og Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands.
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Íslands, með stuðningi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Íslandsstofu, Grósku, Vísindagörðum Háskóla Íslands og Bláa lóninu.


