Tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt.
Verðlaunin verða afhent í hátíðarsal Grósku fimmtudaginn 5. nóvember nk. Öll eru hjartanlega velkomin en við biðjum gesti vinsamlegast um að skrá sig á viðburðinn hér.
Tilnefnt er í þremur flokkum: Vara // Staður // Verk. Þrjár tilnefningar eru í hverjum flokki. Auk þess verða veitt Heiðursverðlaun Hönnunarverðlaun Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun.

Backflip er fellistóll hannaður af Guðmundi Lúðvík fyrir HAY. Stóllinn er endurhugsun á kunnuglegu húsgagni þar sem fellibúnaðurinn hverfur inn í bakið og fegurð, þægindi og form eru í fyrirrúmi.

Leiftur er björgunarbátur hannaður af Páli Einarssyni fyrir Rafnar. Báturinn er hluti af sístækkandi vörulínu björgunarbáta Rafnar sem eru í notkun víða um heim.

Mystic Garden er safn glerlampa eftir Brynjar Sigurðarson og Veroniku Sedlmair hjá Studio Brynjar og Veronika. Safnið samanstendur af handblásnum glerhlutum þar sem tilraunir með efni, lit og ljós mæta frásögnum sem sækja í náttúru, rómantík og hið yfirnáttúrulega.

Óskaland er viðbygging við samnefndan leikskóla í Hveragerði, hönnuð af marimo arkitektum, þar sem arkitektúr, innanhússhönnun, sérhannaðar innréttingar og fjölbreytt garðrými mynda leikandi og notalegt umhverfi út frá skala, sjónarhorni og upplifun barnsins.

Baugur Bjólfs er hringlaga útsýnispallur á Bæjarbrún sem gnæfir 650 metra yfir Seyðisfirði með einstöku útsýni frá mynni fjarðarins og inn dalinn hannaður af Arkibygg og Esju arkitektum.

Frakkastígur 1 er íbúðar- og atvinnuhúsnæði eftir s.ap arkitekta. Húsið er framúrskarandi tilraunaverkefni í hringrásarhönnun þar sem endurnýting byggingarefna, lífsferilsgreiningar og sveigjanleiki til framtíðar eru samþætt arkitektúrnum frá upphafi.

Sketching Bathing in Iceland er verk sem fjallar um sundlaugarmenningu Íslendinga eftir Rán Flygenring. Verkið var gefið út í samnefndri bók og birtist í sýningu og baðteiknismiðjum í þremur sundlaugum í Reykjavík.

Vitrum Iceland er verk eftir hönnuðinn Johönnu Seelemann sem spannar rannsóknir, tilraunir, hönnun, framleiðslu og sýningu. Johanna sameinar handverk og iðnað og skapar framúrskarandi lausnir, ferla og gripi úr endurunnu gleri. Verkin, hliðarborð, vegglampar, vasar, hillur og stóll, voru sýnd í H,A,K,K galleríi.

¡Hola! er herferð malbikunarfyrirtækisins Colas um ástand vega á Íslandi sem unnin var af auglýsingastofunni Pipar\TBWA.
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Íslands, með stuðningi frá Íslandsstofu, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Grósku, Vísindagörðum Háskóla Íslands og Bláa Lóninu.


