Leiftur tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

Leiftur er björgunarbátur hannaður af Páli Einarssyni fyrir Rafnar. Báturinn er hluti af sístækkandi vörulínu björgunarbáta Rafnar sem eru í notkun víða um heim. Leiftur er tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum vara.
Í Leiftri mætast tæknileg nýsköpun, íslensk bátahefð og reynsla íslenskra sjómanna og björgunarsveita í hraðskreiðum báti fyrir krefjandi aðstæður.
Skrokkurinn er hannaður út frá samspili báts og sjávar, með það að markmiði að draga úr höggum, auka stöðugleika og stjórnhæfni og minnka þannig álag á fólk og búnað í hraðsiglingu.
Frá því að Leiftur var fyrst kynntur hefur báturinn verið þróaður í 13 ólíkum útfærslum, verið framleiddur í sjö löndum og verið mest seldi bátur Rafnar í meira en áratug. En áhrif hönnunarinnar ná lengra en það. Leiftur hefur gert björgunarsveitum kleift að sinna störfum sínum við erfiðustu skilyrði og átt þátt í að bjarga mannslífum. Þegar allir aðrir halda í land vegna veðurs fer Leiftur út.
Hönnun Leifturs sprettur úr íslenskri bátahefð og nánu samstarfi Rafnar við Landhelgisgæsluna, verkfræðinga, iðnaðarmenn og reynda sjómenn. Þar mætast hugvit, tækniþekking og reynsla, og staðbundin verkþekking er nýtt í þágu nútíma framleiðslu og krefjandi notkunar.
Það er mat dómnefndar að tæknileg virkni og form myndi eina heild í Leiftri en línur bátsins endurspegla bæði hvernig hann mætir sjónum og arfleifð íslenskra báta. Formið er svo einkennandi að báturinn er auðþekkjanlegur og hefur það mótað heildarásýnd Rafnar.
Leiftur sýnir hvernig framúrskarandi hönnun getur haft áhrif langt út fyrir sjálfa sig: á öryggi, vinnuaðstæður og tæknilega þróun. Verkefnið sameinar íslenska verkþekkingu, bátahefð og nýsköpun sem hefur sannað gildi sitt í raunverulegum aðstæðum og náð út fyrir landsteinana.
Páll Einarsson hefur verið aðalhönnuður Rafnar í rúm 15 ár og leitt þar hönnun og nýsköpun. Rafnar var stofnað af frumkvöðlinum Össuri Kristinssyni sem nýtti áratuga reynslu af hönnun og nýsköpun til að takast á við grundvallaráskoranir í siglingum.




Verðlaunaafhending Hönnunarverðlauna Íslands 2026 fer fram í Grósku þann 5. nóvember næstkomandi ásamt samtali því tengdu. Taktu daginn frá!
Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt. Hönnunarverðlaun Íslands verða veitt í þrettánda sinn í ár og eru veitt í þremur flokkum: Vara // Staður // Verk. Auk þess verður veitt viðurkenning fyrir Bestu fjárfestinguna í hönnun og Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands.
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Íslands, með stuðningi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Íslandsstofu, Grósku, Vísindagörðum Háskóla Íslands og Bláa lóninu.


