Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Sweet Salone hlýtur viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun 2026

5. nóvember 2026

Aurora velgerðarsjóður hlýtur viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun á Hönnunarverðlaunum Íslands 2026 fyrir hönnunar- og þróunarverkefnið Sweet Salone. Sweet Salone stuðlar að félagslegum og efnahagslegum breytingum með því að koma á samstarfi íslenskra hönnuða og handverksfólks í Sierra Leone.

Verkefnið Sweet Salone, sem hófst árið 2017, byggir á þeirri hugmynd að tengja saman íslenska hönnun og staðbundið handverk í Sierra Leone. Þannig verða til vörur sem hafa menningarlegt gildi, atvinnuskapandi áhrif og alþjóðlegt aðdráttarafl.

Með verkefninu er einnig lögð áhersla á að varðveita mikilvæga arfleifð og hefðir í handverki og hlúa að efnivið og framleiðsluaðferðum sem eiga á hættu að glatast.

Eitt af markmiðum verkefnisins er að styrkja stöðu handverksfólks í Sierra Leone með menntun og atvinnu samtímis því að skapa nýjan vettvang fyrir íslenska hönnun sem byggir á alþjóðlegu samstarfi og sjálfbærri þróun. Tugir einstaklinga úr röðum handversfólks þar ytra hafa öðlast þekkingu tengda hugmyndavinnu, vöruþróun, gæðum og markaðssetningu. Þau sem hafa tekið þátt hafa ekki aðeins aukið færni sína heldur einnig fengið tækifæri til að afla sér tekna og tryggja fjölskyldum sínum betri framtíð.

Sweet Salone hefur stuðlað að endurreisn handverks í Sierra Leone eftir borgarastyrjöld og ebólufaraldur og skapað ný tækifæri fyrir ungt fólk. Vörurnar sem sprottið hafa úr samstarfi íslenskra hönnuða og handverksfólksins í Sierra Leone hafa notið vinsælda á Íslandi, í Evrópu og heima fyrir, sem hefur enn frekar eflt stöðu handverksfólks í samfélaginu. 

–

Sweet Salone hefur tengt íslenska hönnuði, þar á meðal Ker, As We Grow, Kron by KronKron, Farmers Market, 1+1+1 og Hugdettu, við handverksfólk í Sierra Leone. Íslenskir hönnuðir hafa unnið með körfugerðarfólki í Brama Town, leirkerasmiðum í Lettie Stuart Pottery Center og klæðskerum og skartgripasmiðum á Lumley Craft Market. Úr samstarfinu hafa orðið til vörur á borð við körfur, keramik, barnaföt og skartgripi, sem seldar eru á Íslandi og hjá evrópskum söluaðilum og hafa m.a. verið sýndar á Maison & Objet í París árið 2026. 

Verkefnið sýnir þannig með skýrum hætti hvernig fjárfesting í hönnun getur haft margfeldisáhrif. Hún getur skapað atvinnu og efnahagsleg verðmæti, styrkt staðbundna þekkingu og menningu og tengt saman ólik samfélög og faggreinar. 

Það er mat dómnefndar að Sweet Salone sé til fyrirmyndar um hvernig hönnun getur orðið verkfæri til varanlegrar verðmætasköpunar. Fjárfesting Aurora velgerðarsjóðs nær langt út fyrir einstakar vörur; hún byggir upp þekkingu, atvinnu og sjálfstæði og sýnir þann samfélagslega og efnahagslega kraft sem felst í vönduðu og langtímasamstarfi hönnuða og handverksfólks.

Hönnunarverðlaun Íslands voru veitt við hátíðlega athöfn í Grósku fimmtudaginn 5. nóvember og er þetta í þrettánda sinn sem verðlaunin eru veitt. Það var Tor Inge Hjelmdal, arkitekt og framkvæmdastjóri DOGA sem veitti verðlaunin. 

Hönnunarverðlaun Íslands eru veitt hönnuði, arkitekt, hönnunarteymi eða stofu fyrir framúrskarandi nýleg verkefni. Við val á verðlaunahöfum er leitað að verkefnum sem skara fram úr og geta staðið sem fulltrúar þess besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs. Verkefnin endurspegla gæði og vera áhrifarík, fela í sér frjóa hugsun, snjalla lausn, vandaða útfærslu, áherslu á fagurfræði og fagmennsku í vinnubrögðum. Einnig er horft til hvort verkefnin séu notendavæn, nýskapandi og hafi jákvæð áhrif á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni.    

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Íslands, með stuðningi frá Íslandsstofu, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Grósku, Vísindagörðum Háskóla Íslands og Bláa Lóninu. 

Tengt efni

  • Tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

  • Frakkastígur 1 tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

  • Baugur Bjólfs tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

Dagsetning
5. nóvember 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Hönnunarverðlaun Íslands
  • Greinar
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200