Jarðsetning eftir Önnu Maríu Bogadóttur kemur út í Danmörku

Danskri útgáfu bókarinnar Jarðsetning eftir arkitektinn og rithöfundinn Önnu Maríu Bogadóttur var fagnað í sendiherrabústað Íslands í Kaupmannahöfn fimmtudaginn 29. október sl. Bókin fjallar um tengsl mannsins við byggingar, staði og menningararf og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2024.
Jarðsetning kom fyrst út á íslensku árið 2022 og tekur mið af niðurrifi á þekktri byggingu í Reykjavík. Í bókinni rannsakar Anna María hvað glatast þegar byggingar hverfa, ekki aðeins efni og auðlindir heldur einnig minningar, saga og staðarandi. Verkið vekur jafnframt upp áleitnar spurningar um hvernig við metum byggt umhverfi okkar og mikilvægi þess að varðveita og endurnýta þær byggingar sem fyrir eru.
Í tilefni útgáfunnar bauð íslenska sendiráðið í Danmörku, í samstarfi við bókaútgáfuna A Mock Book, til útgáfuhófs þar sem Anna María las úr bókinni. Að því loknu tók við samtal Önnu Maríu við danska arkitektinn og prófessorinn Søren Nielsen og Tinu Saaby, fyrrverandi borgararkitekt Kaupmannahafnar. Harpa Birgisdóttir, prófessor við Álaborgarháskóla, stýrði umræðunum.
Samtalið snerist um varðveislu bygginga, sjálfbærni, menningararf og því hvernig við getum þróað borgir framtíðarinnar án þess að glata þeim verðmætum sem þegar eru til staðar.
Bókin er nú þegar komin út á dönsku undir heitinu Jordfæstelse í þýðingu Kim Lembek. Við óskum Önnu Maríu innilega til hamingju!










