Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Hönnuður í fókus: Guðmundur Lúðvík

11. nóvember 2026

Guðmundur Lúðvík, húsgagnahönnuður, er hönnuður í fókus í nóvember. Frá húsasmíði og leikmyndagerð á Íslandi til samstarfs við alþjóðlega húsgagnaframleiðendur. Ferill Guðmundar Lúðvíks spannar allt frá húsasmíði og skúlptúr til alþjóðlegrar húsgagnahönnunar, þar sem forvitni, sköpunargleði og virðing fyrir handverkinu hafa alla tíð verið í fyrirrúmi. Nýverið var fellistóllinn Backflip, sem hann hannaði fyrir danska húsgagnaframleiðandann HAY, tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026. Við ræddum við Guðmund um ferðalagið frá smíðaverkstæðinu að alþjóðlegum hönnunarsýningum, töfrana í einföldum lausnum og mikilvægi þess að vanda til verka.

Frá smíðaverkstæðinu í hönnunarheiminn

Guðmundur Lúðvík hefur búið og starfað í Danmörku í rúman aldarfjórðung, en rætur hans liggja í íslenskri handverkshefð. Áður en hann sneri sér að húsgagnahönnun starfaði hann sem húsasmiður og síðar við leikmyndagerð fyrir íslenskar kvikmyndir. Þar kviknaði áhugi á að kanna nýjar leiðir í skapandi vinnu. „Ég hef í raun alltaf haft áhuga á að smíða og byggja hluti. Sem barn hafði ég mikinn áhuga á að teikna og smíða og í skólafríum vann ég oft á byggingarsvæðum eða hjálpaði til við ýmis verkefni. Þess vegna lá nokkuð beint við að ég yrði húsasmiður,“ segir Guðmundur.

Leikmyndagerðin opnaði honum hins vegar nýjan heim þar sem meira rými gafst fyrir tilraunir og frjálsa hugsun. Hann fór að sækja teikninámskeið og stunda nám á hönnunarlínu Iðnskóla Hafnarfjarðar áður en hann hóf nám í skúlptúr við Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1995. Þar tók hann meðal annars þátt í verkefninu Bomobil, þar sem sjö nemendur þróuðu og smíðuðu færanlegt heimili fyrir einn einstakling. Verkefnið var sýnt í Stokkhólmi árið 1998, þegar borgin var menningarborg Evrópu, og hlaut verðlaun fyrir raunhæfustu hugmyndina. Reynslan varð Guðmundi mikilvæg og leiddi hann að lokum til Danmerkur, þar sem hann hóf nám við Danmarks Designskole í Kaupmannahöfn. „Þegar ég byrjaði í Kaupmannahöfn var eins og nýr heimur hefði opnast fyrir mér. Ég kynntist mörgu fólki sem hafði áhuga á sömu hlutum og ég og mér leið á margan hátt eins og ég væri kominn á réttan stað,“ segir hann.

Hann hóf nám í iðnhönnun en færði sig fljótlega yfir í húsgagnahönnun, þar sem fyrri reynsla hans af smíði og skúlptúr sameinaðist á nýjan hátt. „Bakgrunnur minn sem iðnaðarmaður hefur gefið mér skilning á efnum, smíði og því hvernig hlutir verða til. Höggmyndanámið gaf mér aðra sýn á form og rými og húsgagnahönnunin sameinaði að mörgu leyti þessa tvo heima.“

Lokaverkefni sem endaði í heitu baði

Ein eftirminnilegasta saga Guðmundar frá námsárunum tengist lokaverkefni hans í Kaupmannahöfn. Þar ákvað hann að hanna samanbrjótanlegt baðkar fyrir fólk sem bjó í litlum íbúðum og hafði ekki pláss fyrir hefðbundið baðkar. Hugmyndin átti rætur í íslenskri baðmenningu og þeirri sjálfsögðu nálægð við heitt vatn sem hann hafði alist upp við. „Ég ólst sjálfur upp á Íslandi þar sem heitt vatn og aðgangur að náttúrulegum baðstöðum er sjálfsagður hluti af daglegu lífi. Það var ekki fyrr en eftir að ég flutti frá Íslandi sem ég fór að gera mér grein fyrir hversu mikils virði þetta var fyrir mig.“

Eftir langt þróunarferli og viðræður við yfirvöld skólans fékk hann loks leyfi til að fylla baðkarið af vatni við lokakynninguna. Hann lagði slöngu í gegnum skólann að næsta salerni, fyllti karið og lauk svo kynningunni með heldur óhefðbundnum hætti. „Þegar karið var fullt lauk ég kynningunni með því að fara í bað og svara spurningum og gagnrýni í baðslopp. Ég gat nú kallað mig húsgagnahönnuð,“ segir Guðmundur og hlær.

Íslensk útsjónarsemi og dönsk hönnunarhefð

Dvölin í Danmörku hefur haft mikil áhrif á Guðmund, bæði persónulega og faglega. Þar hefur hann kynnst sterkri hönnunarhefð og þróað eigin nálgun, en íslenski bakgrunnurinn hefur aldrei verið langt undan. Hann segir ákveðna þrjósku og útsjónarsemi fylgja sér úr uppeldinu á Íslandi. „Á Íslandi segjum við oft „þetta reddast“. Það snýst ekki endilega um að trúa því að hlutirnir leysist af sjálfu sér, heldur að halda áfram að vinna, rannsaka og prófa þar til maður finnur leið áfram.“

Með árunum hefur sýn hans á hönnun jafnframt breyst. Þar sem hann leit áður á hönnun sem leið til að skapa eitthvað nýtt og öðruvísi snýst hún í dag fyrst og fremst um að finna góðar lausnir á raunverulegum viðfangsefnum. „Í dag lít ég fyrst og fremst á mig sem góðan iðnaðarmann. Fyrir mér snýst hönnun um að leysa vandamál á góðan og vandaðan hátt. Verkfærakistan mín hefur einfaldlega stækkað.“

Fellistóll sem átti eftir að breyta miklu

Áhugi Guðmundar á fellistólum nær allt aftur til barnæsku. Hann var um ellefu ára gamall þegar hann sá fellistól eftir Valdimar Harðarson á vinnustað móður sinnar. Hreyfingin og umbreytingin heilluðu hann svo mjög að minningin hefur fylgt honum æ síðan. „Ég heillaðist af því hvernig stóllinn gat breytt um form á þennan sérstaka hátt. Mér fannst það næstum því töfrum líkast,“ segir hann.

Sóley eftir Valdimar Harðarson sem hafði mikil áhrif á Guðmund Lúðvík

Það er því kannski engin tilviljun að fyrsta húsgagnið sem Guðmundur kom í framleiðslu eftir útskrift var einmitt fellistóll. Stóllinn, sem hlaut nafnið Elica, fór í framleiðslu hjá ítalska húsgagnaframleiðandanum Lapalma eftir að Guðmundur og félagar hans sýndu verk sín á Bella Center í Kaupmannahöfn. Þótt stóllinn hafi aðeins verið framleiddur í nokkur ár reyndist verkefnið mikilvæg reynsla. Framleiðslukostnaðurinn var of hár fyrir þann markað sem honum var ætlað að þjóna og Guðmundur lærði snemma að góð hugmynd ein og sér tryggir ekki farsæla vöru.

Fyrstu árin eftir útskrift voru ekki alltaf auðveld. Hann tók að sér ýmis verkefni, sinnti fjölskyldunni og starfaði áfram við handverk. Árið 2008 hóf hann kennslu í húsgagnahönnun, sem hefur síðan verið mikilvægur hluti af starfsferli hans. Árið 2012 stofnaði hann hönnunarsamstarfið Welling/Ludvik ásamt danska hönnuðinum Hee Welling, sem hann hafði kynnst í náminu. Þremur árum síðar hófst samstarf við hollenska húsgagnaframleiðandann Arco sem hefur staðið í meira en áratug. Guðmundur leggur mikla áherslu á mikilvægi samstarfs, trausts og þess að miðla þekkingu. „Ég hef alltaf trúað því að maður komist lengra með því að deila þekkingu og hjálpast að.“

Þegar bakið tók við hlutverki sætisins

Fellistóllinn Backflip, sem Guðmundur hannaði fyrir HAY, er afrakstur áralangra tilrauna og þróunarvinnu. Markmiðið var að skapa stól sem væri ekki aðeins hagnýtur þegar hann væri felldur saman, heldur stæði jafnframt jafnfætis hefðbundnum stólum hvað varðar þægindi, útlit og notagildi. „Það hefur verið mikilvægt fyrir mig að fellistóll sé ekki málamiðlun. Hann þarf að vera jafn góður að sitja á, horfa á og nota og venjulegur stóll. Það að hægt sé að fella hann saman á að vera viðbót við eiginleika hans en ekki afsökun fyrir því að gefa eftir í öðrum atriðum.“

Lykillinn að lausninni fólst í því að endurhugsa sjálfa fellihreyfinguna. Í stað þess að láta sætið hreyfast, eins og algengast er í hefðbundnum fellistólum, færði Guðmundur hreyfinguna upp í bakið. Þannig tókst honum að skapa sterkari og beinni tengingu milli fóta og sætis. Hann vann hugmyndina áfram í gegnum teikningar, vélræn líkön og frumgerðir í fullri stærð. Upphaflega stóð til að sýna stólinn í Chicago árið 2020, en þegar sýningunni var aflýst vegna heimsfaraldursins ákvað Guðmundur að hafa samband við HAY.

Fyrsti fundurinn var eftirminnilegur. „Ég man vel eftir fyrsta fundinum. Rui Pereira sem ég hitti fyrst yfirgaf fundarherbergið frekar fljótlega og án frekari útskýringa og ég sat eftir í óvissu.“ Skömmu síðar sneri Rui aftur ásamt Rolf, eiganda HAY. Viðbrögðin gáfu Guðmundi von um að hugmyndin ætti framtíð fyrir sér. „Rolf sagði undir lokin að hann hefði aldrei ímyndað sér að HAY myndi framleiða fellistól en kannski yrðu þeir að gera það núna.“

Við tók nokkurra ára þróunarvinna með teymi HAY. Ein stærsta áskorunin var að þróa öryggislæsingu sem félli eðlilega inn í hönnunina án þess að hafa áhrif á útlit eða virkni stólsins. „Ég á ennþá heilu kassana af fjöðrum, líkönum og þrívíddarprentuðum læsingum frá þessu ferli.“ Þrátt fyrir langa þróunarvinnu héldust grunnform og hlutföll stólsins nánast óbreytt frá fyrstu frumgerðum.

Kynning Backflip á hönnunarhátíðinni 3 Days of Design í Kaupmannahöfn markaði síðan stór tímamót. Stóllinn vakti alþjóðlega athygli og síðar hlaut hann tilnefningu til Hönnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum Vara ársins. „Það hefur sérstaka þýðingu fyrir mig að stóllinn hafi síðar verið tilnefndur til Icelandic Design Awards. Ísland skiptir mig miklu máli og það er ánægjulegt að upplifa að verkefni sem ég hef unnið að í svo mörg ár fái einnig viðurkenningu þar.“

Hendurnar og augun mikilvægustu verkfærin

Þrátt fyrir að starfa í alþjóðlegu umhverfi og nýta sér fjölbreytta tækni eru það enn einfaldar aðferðir sem Guðmundur treystir hvað mest á í sköpunarferlinu. Hugmyndirnar kvikna gjarnan við hversdagslegar athuganir. Eitthvað sem virkar ekki alveg eins og það ætti að gera, hreyfing sem mætti einfalda eða hlutur sem mætti bæta. „Fyrsti hlutinn snýst oft um að kanna hugmyndina á eins einfaldan hátt og hægt er. Ég teikna, brýt saman pappír eða smíða lítil líkön úr þeim efnum og hlutum sem ég hef í kringum mig,“ segir hann.

Margar hugmyndir komast aldrei lengra en á fyrstu skissustigum. Það er eðlilegur hluti af ferlinu að hans mati. Þegar hugmynd stenst hins vegar fyrstu prófanirnar tekur við ítarleg vinna með form, hlutföll, efni, virkni og framleiðsluaðferðir. „Ég nota mörg mismunandi verkfæri, bæði hefðbundin handverkfæri og stafræn verkfæri. En mikilvægustu verkfærin eru samt hendurnar og augun.“

Guðmundur sækir ekki síður innblástur í framleiðsluferli og handverkshefðir en í hönnunina sjálfa. Hann hefur sérstakt dálæti á að heimsækja verkstæði og framleiðslustaði þar sem aðferðir hafa þróast og tekið breytingum í gegnum kynslóðir. „Ég er ekki endilega að leita að einhverju nýju til að hanna, en ef ég tek eftir einhverju sem mætti virka betur verð ég forvitinn og fæ áhuga á að skoða það nánar.“

Góð hönnun þarf ekki að hrópa á athygli

Að mati Guðmundar felst góð hönnun fyrst og fremst í jafnvægi. Hún þarf að þjóna tilgangi sínum, vera vönduð og falla vel að því umhverfi sem henni er ætlað. „Gott húsgagn eða nytjahlutur má alveg vera áhugaverður á að líta og hafa smáatriði sem vekja aðdáun, en hann á ekki að kalla of mikið á athygli,“ segir hann.

Guðmundur hefur litla trú á því að fylgja tískustraumum og telur þá oft ýta undir óþarfa neyslu. Í staðinn leggur hann áherslu á vandaða framleiðslu, endingargóð efni og hluti sem standast tímans tönn. Þar skiptir ábyrgð hönnuðarins miklu máli, ekki aðeins gagnvart notandanum heldur einnig umhverfinu. „Ég sé mun á list og hönnun. List má gjarnan ögra og vekja athygli. Hönnun hefur annað hlutverk. Hún á að leysa ákveðið verkefni og er oft framleidd í miklu magni.“

Hann telur mikilvægt að horfa á alla lífsleið vörunnar, allt frá efnisvali og framleiðslu til flutninga og endingartíma. Sjálfbærni verði ekki metin út frá einum eiginleika heldur þurfi að skoða heildarmyndina. „Ég lít á hönnun sem iðngrein. Sem vöruhönnuður ber maður ábyrgð á því að skila af sér góðu handverki. Það er ekki í lagi að vanda sig ekki.“

„Maður þarf ekki að geta eða vita allt sjálfur“

Þegar Guðmundur lítur yfir farinn veg er það fyrst og fremst þakklætið sem stendur upp úr. Leiðin hefur ekki alltaf verið bein og hann viðurkennir að á köflum hafi hann jafnvel verið nálægt því að skipta alveg um starfsvettvang. Hann segir að ef hann gæti gefið yngri útgáfunni af sjálfum sér eitt ráð væri það að leita fyrr eftir leiðsögn reyndara fólks. Starfsnám eða reynsla á rótgróinni hönnunarstofu hefði mögulega auðveldað honum fyrstu skrefin eftir útskrift.

Á móti kemur að samstarfið, vináttan og faglega samfélagið sem hann hefur byggt upp í gegnum árin hafa reynst honum ómetanleg. „Ég held að það sé mikilvægt að einangra sig ekki. Samfélag og miðlun þekkingar skipta gríðarlega miklu máli í okkar fagi.“

Og hvaða ráð myndi hann gefa ungum hönnuðum sem eru að stíga sín fyrstu skref? „Takið virkan þátt, talið við annað fólk og deilið reynslu ykkar og þekkingu. Maður þarf ekki að geta eða vita allt sjálfur. Verið opin fyrir því að læra af öðrum og leitið víða eftir reynslu og þekkingu.“

Sjálfur segist Guðmundur hvergi nærri hættur að vera forvitinn. „Ég horfi björtum augum til framtíðar og lofa að gera mitt besta,“ segir Guðmundur einlægur að lokum.

Tengt efni

  • Backflip tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands 2026

  • Opið kall eftir sýningum í Norræna húsinu á HönnunarMars

  • Sól Hansdóttir fatahönnuður kemur fram á DesignTalks 2027

Dagsetning
11. nóvember 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
  • Hönnuður í fókus
  • Guðmundur Lúðvík

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200